“So do you think you can map?”

Eins og nafnið gefur til að kynna er þetta samkeppni um að búa til borð sem
hægt er að spila í þeim leikjum sem eru taldnir upp hér fyrir neðan.

Hugmyndina af keppninni átti hann GullMoli hjá #mod.is samfélaginu og vonar
hann, sem og við, stjórnendur þess að keppnin eigi eftir að fá fjölda borða
í keppnina sem og fjölda umsækjanda.

Þegar líður á enda keppninnar munu koma upplýsingar hvernig hægt sé að skila
borðunum til stjórnenda og hvar borðin munu vera vistuð svo að samfélagið
getur sótt þau og prófað.

Allar nauðsynlegar upplýsingar eru að finna fyrir neðan.


—————————–


Eftirfarandi leiki er leyft að gera borð fyrir, ef það er leikur sem er
ekki þarna er hægt að hafa samband við einn af stjórnendum keppninnar og
munu þeir ákveða hvort leikurinn muni komast inn á listann.


HL1 Based:

- Vampire Slayer
- The Speccialists
- Natural Selection
- Pirates Viking Knights


HL2 Based:

- Half-Life 2
- Half-Life 2 Deathmatch
- Pirates Viking Knights 2
- Hidden Source
- Source Forts



—————————–


Dæmt verður fyrir eftirfarandi flokkum:

Gæði,
notagildi,
frumlegaheiti,
og skemmtanargildi borðs.

Ef það skila sér inn nógu mörg borð munu stjórnendur keppninnar ákveða hvaða
5 borð fara í úrslit í hverjum flokki.
Hvert borð getur semsagt unnið meir en ein verðlaun, sem dæmi gæti borð sem
var tilnefnt í flokkinn gæði og notagildi unnið báða flokkana, en það fer
allt eftir úrslitum kjósanda.

Ef það verða bara örfá borð sem skila sér inn í keppnina munu stjórnendur
ákveða hvort þau fara beint í kostningu kjósanda, eða hvort þeir ákveða að
tilnefna þrenn borð fyrir hvern flokk.


—————————–


Skilafresturinn stendur í einn mánuð frá því að þessi grein birtist og er
þessvegna sem við vonumst til þess að þið nýtið þann tíma til þess að gera
borðin.
Ef borði er skilað of seint mun það falla úr leik sjálfkrafa, nema að
stjórnendur gefi því möguleika svo ekki hika við að skila borðinu þínu inn
til stjórnenda.


—————————–


Reglur:

#1 Hver einstaklingur má skila allt að tvem borðum ef það er hans ósk og
getur það aukið vinningsmöguleika.

#2 Hinsvegar, ef það vilja vera nokkrir einstaklingar að einu borði þá er
það leyfilegt, en aðeins 3 mega vinna að sama borðinu og mega þeir aðeins
skila einu borði inn í keppnina.Ef einstaklingarnir óska þess að skila
fleirum borðum þá er hægt að fara að reglu númer eitt og skila allt að
tvemum borðum á einstakling.

#3 Borðin skulu vera spilanleg fyrir að minnstakosti 10 manns, annars munu
þau falla sjálfkrafa úr leik.

#4 Óleyfilegt er að senda inn borð undir tvem nöfnum, sem dæmi ef Jónas
myndi skila inn tvem borðum sem Magnús og svo tvemum sem Eiríkur.

#5 Óleyfilegt er að nota borð sem eru nú þegar til sem sýnis í Hammer, eða
þá sem eru til inn í leiknum. Hinsvegar er allt í lagi að opna þau borð, og
skoða þau til hjálpar. Auk þess er óleyfilegt að taka borð annarstaðar og
nota þau, þótt þeim sé breytt.

#6 Ef kemst upp um brot af þessum reglum áskila stjórnendur sér rétti á að
dæma þann/þá aðila úr leik.

#7 Stjórnendur áskila sér allann rétt á því að dæma borð úr keppnun ef þeir
telja þess þurfa. Auk þess áskila stjórnendur sér rétt á því að breyta
reglum án fyrirvara ef þeir telja þess þurfa.


—————————–


Dómarar:

* Gullmoli
* Skyzo
* Desidius
* Chef-Jack


—————————–


Að lokum langar okkur að óska ykkur góðs gengis.

Vona að við sjáum ykkur á #mod.is og #half-life.is á ircinu þar sem það er hægt að ná í okkur þar.
Auk þess verðum við með spjallborð hérna ( http://mod.is/e107_plugins/forum/forum_viewforum.php?510 ) og þar verður líka hægt að

spyrja spurninga og fá hjálp sem við munum veita af bestu getu.

Takk fyrir,
Stjórnendur.