Sæl veriði.

Nú hafa hrunið yfir mig fjöldinn allur af kvörtunum varðandi admin abuse, fólk að “stela” serverum og jafnvel breyta upprunalegum stillingum eins og serverpassword og annað. Höfum við því ákveðið að loka scrim serverunum á miðvikudaginn næstkomandi ef þetta verður ekki lagað og óvíst hvort þeir muni koma upp einhverntímann aftur! Þannig ef notendur taki sig ekki á í þessum málum þá hverfa serverarnir.

Nú reglurnar eru eftirfarandi:
* BANNAÐ er undir öllum kringumstæðum að skipta um serverpassword, eftirfarandi steamid sem verður gómað við verkið fær lífstíðarbann á öllum Simnet serverunum.
* Bannað er að halda server, 5on5 ganga fyrir og ef viðkomandi lið er ekki tilbúið með fullskipað lið og tilbúna andstæðinga VÍKUR eftirfarandi lið. Reynið nú að vera skynsöm og ekki láta þetta ganga út í öfgar.
* Sá sem er að taka server af liðum sem eru með fullskipað lið og andstæðinga verður hiklaust bannaður á Simnet serverunum.

Þessar reglur ganga yfir ALLA, hvort sem þeir eru admins eða almennir notendur, besti cs spilari á landinu eða sá versti. Ef þessum reglum verður ekki sinnt þá hverfa serverarnir.

—–

Nú að öðrum málum. Mikið hefur verið um adminleysi hjá Simnet þannig við óskum hér með eftir adminum. Einu skilyrðin eru að aðilinn verður að hafa náð 16 ára aldri, spili reglulega á Simnet serverunum og svari kalli notenda. Ef að þið getið ekki gert þetta ánþess að abusea eða vegna annara ástæðna þá ekki sækja um.

Sendið email á csrcon@simnet.is og takið fram:
Nafn,
Nick,
Aldur,
Clan,
og afhverju þið ættuð að vera RCON.


Ef þið fyllið þetta ekki vandlega út þá verður henni eytt.

Munið líka að ef þið fáið ekki svar þá hafiði ekki fengið starfið þannig þið getið alveg sleppt því að senda fullt af emailum, senda mér hugaskilaboð eða msga mig á ircinu, ég mun hunsa svoleiðis.

Eigiði góðan dag.
"Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life." -Confucius