Núna áðan komst upp um 2 svindlara. Báðir koma frá Íslandi.

[TVAL]Dominator sást spila núna um daginn og tekið var demo af honum við iðju sína. Ekki fer á milli mála eftir að búið er að skoða demoið með wallhack á að hann er að svindla.


[Doggy-Strike]Evil Bangsimon er hinn spilarinn og var hann bustaður við iðju sína núna áðan af einum af mörgum sem hafa rcon og/eða admin réttindi. Ég á eftir að finna út hver viðkomandi er og í hvaða klani og vil ég biðja þann sem veit eitthvað um þennan einstakling að koma þeim upplýsingum til mín á cs@simnet.is

Þessir aðilar eru komnir í lífstíðarbann á Símnet Half-Life Counter-Strike serverum. Einnig eru þeir hér með bannaðir á öllum Skjálftamótum héðan í frá.

Hvað varðar klön þessara manna (líka Bangsimon þegar upp um hann kemst) þá er þeim ekki leyfð þáttaka á Skjálfta mótum nema viðkomandi einstaklingi sé vikið úr klaninu. Þetta er óumsemjanlegt og ekki þýðir að reyna að malda í móinn.


Ég get fullvissað menn um að ICSN mun beita sömu viðurlögum ef ekki harðari.


Verið er að skoða fleiri einstaklinga sem eru grunaðir um svindl á serverunum og þegar upp um þá kemst fá þeir sömu viðurlög.


zlave

Simnet Half-Life Counter-Strike Admin.