Þetta er farið að verða fyndið hjá ykkur. Þið megið ekki sjá neinn ná nokkrum headshottum í röð. Þið megið ekki sjá neinn fara yfir 30 kill á borði. Halló, er ekki í lagi hjá ykkur. Þið eruð orðnar vælnar kerlingar og ekkert annað.

Auðvitað koma svindlarar á serverana eftir að PunkBuster fíflin ákváðu að vilja rukka VALVE fyrir það sem þeir eru að gera, VALVE sagði auðvitað nei.

Hvað þykjast þessir háu herrar sem búa til PunkBuster vera? Bara vegna þess að VALVE vill ekki láta þá fá peninga þá fara þeir í fýlu og hætta bara. So much for “doing it for the community”

Snúum okkur að þessu svindl tali hérna heima. Í 90% tilvika þar sem spilari er sakaður um svindl er það rangt, maðurinn er bara að spila vel. Hin 10% eru vafaatriði, ég myndi segja að í helming þessara 10% væri hrein svindl á ferð og í langflestum er um útlending að ræða. Þá sitja eftr 5% sem verður endalaust hægt að deila um, r_drawviewmodel 0, gamma 100 ofl.

Þið eruð bara hreinir aumingjar að væla svona yfir svindli. Ég hef síðan ég byrjaði í CS (Beta 4) ekki séð lélegri spilamennsku á serverunum. Ef ég fer á 32 manna server í dag er ég að ná yfir 30-40-50 kills og með fá deaths, á 16 manna server er ég að fara yfir 20-30. Þetta gerðist ALDREI hér áður. Mitt álit er að í þetta samfélag séu komnir lélegir spilarar sem eru svo barnalegir að þeir fatta ekki þegar verið er að yfirspila þá.

Svindl verða alltaf til í CS meðan HL engine-ið er notað, accept it, live with it and try to kick the ones cheating.

Eflaust eruði allir mér ósammála en tough luck, I Don't Care, þetta er mitt álit og það er margt sem segir mér að ég hafi 100% rétt fyrir mér.

Þið eruð að skemma leikinn sjálfir með þessum svindlásökunum, reynið að troða því í hausinn á ykkur. Ef þið hugsuðu minna um hversu mörg frögg þið væruð með og meira um teamplay og taktík þá mynduð þið ekki væla svona mikið.

Og varðandi PunkBuster þá er hann farinn af serverunum þar til annað kemur í ljós. Ef þið eruð ekki búnir að heyra afhverju hann var tekinn af þá legg ég til að þið skoðið www.punkbuster.com þó ekki nema til þess að sjá það svart á hvítu að hann er dauður í bili allavega


Love and Peace to you all.

zlave da admin