Halló halló.

Ástæðan fyrir því að ég set þetta hérna en ekki í tilkynningar er útaf því að greinarnar ná frekar athygli fólks frekar en tilkynningarnar.

Nu eins og glöggir hafa tekið eftir er kominn video kubbur hérna á áhugamálið. Þetta er einungis prufu útgáfa og mun þetta verða vonandi betra og betra með tímanum og hver veit nema þetta verði svo fastur liður á huga og fólk geti sent inn videoin sjálf eins og myndir og kannanir.

Ef þú lumar á góðri klippu sem tengist þessu áhugamáli þá skaltu ekki hika við að senda mér póst hérna á huga. Þetta getur verið af youtube eða jafnvel bara klippa frá þér sjálfum, þá sendiru mér hana bara og ég kem henni svo áleiðis til réttra aðila.

Eins og ég segi þetta er allt á þróunarstigi og margt sem á eftir að bæta og ef þið eruð með góða hugmyndir þá endilega commentið á þessa grein.

Þakka fyrir mig.
"Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life." -Confucius