Hér er einn gullmoli

Með vaxandi aðgangi að ADSL, loftneti eða öðrum góðum tengingum virðist sem online Half-Life ( CS/DOD og annað )spilurum hafi töluvert fjölgað. En þessu fylgir ákveðið vandamál.

Þeir aðilar sem hingað til hafa komist upp með að fá “lánaðan” cd key hjá vinum eða kunningjum til að geta spilað á lönum og öðrum samkomum lenda heldur betur í vandræðum. Nú er þeirra CD Key í notkun og ekkert annað að gera en að rölta út í búð og versla sér CD Key ( er ekkert annað því viðkomandi er nú þegar með eintak af leiknum ).

En hér er rúsínan í pylsuendanum:

Þegar undirritaður ætlaði að gerast svo heiðarlegur að kaupa sér eintak af þessum frábæra leik, var hann hreinlega ekki til. Þá er talað um að undirritaður fór í og hringdi í allar helstu tölvu- og leikjaverslanir í leit af þessum skemmtilega leik. Allt kom fyrir ekki að viðkomandi leikur virtist ekki vera til á landinu.

Nú sný ég mér að ykkur, íbúar Huga. Látið ykkar ljós skína. Hafið þið lent í þessu?