Jááá, ég hef ákveðið að taka fragmovie mitt yfir á nýtt plan, þar sem ég hef ekki fengið neitt alltof mikið af klippum ákvað ég að kitla aðeins fólk í það að senda mér klippur sem það á og setja þetta þannig upp að ég byrji á óþekktum spilurum og fer svo yfir í elítuna.

Þannig þetta yrði þá skipt í þessa parta

Intro
Fragpart 1; Unknown Players
Fragpart 2; Elite Players
Outro

Í Fragpart 1 mundi sáralítið verið gert nema bara dúndrandi frögg frá hverjum sem er alveg sickest of the sickest.

Svo í Fragpart 2 þarf ég að biðja elite players á klakanum um hjálp, þá vill ég fá klippur frá mönnum úr; seven, mta, exile, diG, rcL?, tsN?, rws?

þessi 3 með spurningarmerki er það sem ég vill að fólk komi með, hvað finnst þér vera svona top6-7 clön á klakanum, og þau fá þá að vera hluti af fragpart 2 og í honum kemur profile með hverjum spilara og smá texti.

Þá ert þú að spyrja, af hverju er ég að koma fram fyrir hönd íslands eins og Magni og Eiður Smári? júú, ég mun tala við öll helstu gaming community þarna úti og reyna að gera movie þannig að það fái umfjöllun og þá eru þeir sem taka sig til og senda mér frögg, að koma fram fyrir hönd íslands, og ég vel bara bestu frögginn í Fragpart 1, sama hvert nick er og svo svona frægustu frögg sem Elite'an er að drepa í, Þá væri gaman ef einhverjir muna eftir fröggum frá Retired spilurum, zomb, blibb, DynaMo, etc.

Svo gott fólk, endilega aðstoðið mig af allri getu og ég mun standa við minn hluta og gera movie sem við getum verið stolt af!