Sæælar!

Mig vantar smá hjálp frá ykkur kæru tölvuleikja spilurum.

Eins og flestir vita höfum við(seven) opnað nýja og glæsilega netleikja fréttasíðu sem mun aðalega einblína á íslenskt counter-strike samfélag í heild sinni.

Þið munuð fá nýjustu fréttirnar, feitasta slúðrið, hlægilegustu myndirnar, flottustu video-in, atvinnumanna tips og sturluð blog allt á sömu síðunni!

Þetta er rétt að fara í gang hjá okkur og við erum að læra inná þetta, við erum að vinna í þessu í marga tíma á dag að gera þetta eins þægilegt og flott og við getum fyrir ykkur, þetta er bara byrjunin á þessu öllu.

En núna komið þið lesendur og tölvuleikja unendur aðeins inní söguna, þar sem við erum ekki með marga fréttaritara þá getur það verið býsna erfitt fyrir okkur að geta verið með púlsinn á öllu sem er að gerast í samfélaginu. Til að þetta verði allt ruglað töff og fólk geti komið inná seven.is nokkrum sinnum á dag og alltaf fengið eitthvað nýtt til að skoða og brosa yfir, þá þurfið þið að láta okkur vita hvað er að gerast, það er nóg að msga okkur og segja hvað væri sniðugt að skrifa og koma með tillögur og comment.

Hvaða spilara vill fólk sjá viðtöl við ?
Hvaða files vill fólk fá inná seven.is ?
Hvað vill fólk lesa ?
Hvernig hjálpargreinar vill fólk ?


Við erum með fullt af hugmyndum, en við viljum meira og meira, við ætlum að starta vikulegum liðum og leikjum. Svo eru Vent serverarnir væntanlegir aftur og mér heyrðist líka á mönnum að CSDM serverinn sé eitthvað að fara líta dagsins ljós aftur, betri en nokkru sinni fyrr.

Droppið bara línu á okkur, hérna á huga, irc eða í email, við erum opnir fyrir öllu!

Svo núna er málið að henda sér inná seven.is, búa til account og commenta á billjón og fylgjast með öllu sem er að gerast!

Ég vil þakka Hadda og Sk1zy fyrir þessa glæsilegu síðu sem mun gera lífið svo mikið mikið skemmtilegra hjá okkur öllum.

Fyrir hönd www.seven.is og seven.cs,

Guðmundur Helgi ‘roMim’ Jónsson