de_survivor Engin Jeri þarna að spóka sig um léttklædd því miður, en þetta er samt sem áður ansi skemmtilegt borð.

Við vinnufélagarnir tókum smá hádegispásu í þetta, og líkaði vel. Þara er að finna vakir og brýr sem að menn geta fallið ofan í (passið ykkur á snjóbrúnni og tjörninni undir brú við byrjunarreit Terrorista).

Það snjóar og fínerí, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst okkur ekki að skjóta niður örninn sem sveimar yfir gilinu, hann var í massive kevlar no doubt. Ískristallarnir í gilinu eru helvíti nettir en nokkuð óraunverulegir :p (CS menn alltaf að tala um hvað CS sé raunverulegt…).

Flugvélin og trukkurinn eru fínir bombustaðir, sem að erfitt getur að verja, en þó vel mögulegt með smá skipulagi og smá zoom. Þetta er nokkuð ljóst borð, sem að mér líkar vel, öll þessi dökku borð eru svolítið þreytandi. Þó eru 2-3 staðir fyrir þá sem kunna því best að fela sig í rökkrinu.

Fínasta borð og ég bíð spenntur eftir því að sjá það í rotation á serverunum.

-Augustus
Summum ius summa inuria