Hvernig er þetta, spilar enginn Action Half-Life?
Er ekkert vit í ykkur hálflíflingum, er það eina sem þið spilið CS?

Hvernig væri að þið mynduð allir fara á og ná ykkur í Action Half-Life og bæta smá fjölbreytni í þetta hálflíf ykkar.
Hægt er að ná í nýjustu útgáfu á <a href="http://ahl.telefragged.com">Action Half-Life</a> síðunni og einnig er Beta4 á leiðinni.
Action halflife er gert af sömu aðilum og gerðu Action Quake2 á sínum tíma og eru að fara vinna að Action UT.
Action Half-life er að nokkru leiti betri en AQ en þó hefur Halflife verið soldið þekktur fyrir lag þegar komnir eru margir playerar, sem er reyndar alltaf verið að bæta með patches og fleiru.

En ég mæli endilega með að allir hálflífarar kíki á ahl sem fyrst og reyni að spila eitthvað annað en cs svona endrum og sinnum.