Góðan dag.

Hér ætla ég að fylgja í gegnum hvernig á að setja AMXX inná server í cs.

Allar möppur sem ég tala um eins og addons, config og svoleiðis þær eiga heima inni í dedicated server möppunni og undirmöppum (C:program files/steam/steamapps/þinn_account/dedicated server/ )
Þ.e.a.s. ef þú ert að keyra server á steam GUI

AMX Mod X er nýjasta útgáfan af þessum server addons-um og það er mjög notendavænt en þó ekki allir sem kunna á það.

Byrjaðu á að ná í þetta: http://prdownloads.sourceforge.net/amxmodx/amxmodx-installer-1.71.exe?download (velja mirror og downloada og ath þetta er erlent dl.)

Þegar þetta er komið þá installaru þessu.

Þegar það er búið þá installaru aftur (hljómar asnalega en þú byrjar á því að installa installernum) og þegar það kemur að því hvaða leik þetta á að vera fyrir þá áttu ekki að fara í steam dedicated server heldur choose mod directory.

Finndu hvar dedicated serverinn er (oftast C:\Program Files\Steam\Steamapps\þinn_account\dedicated server\cstrike\ )

Þegar þetta er búið þá er amxx komið inn, en það er meira sem þú þarft að gera.

Ef þú ferð í cstrike möppuna þá áttu að sjá möppu sem heitir addons. Þessi mappa er amx-ið. Allt inni í henni tengist amx-inu þínu.

Til að vera admin á servernum þínum þarftu að byrja á því að ná í steamid hjá öllum þeim sem eiga að vera admin og fara síðan í addons\amxmodx\configs\users.ini og setja steamidin neðst í þessu formi :
STEAM_0:0:****** “” “abcdefghijklmnu” “ce”

Ef þú ætlar að vera með einhverskonar plugins á servernum (s.s. sjá hvað maður tekur mikið dmg þegar maður skýtur eða deathmatch eða þannig) þá þarftu að ná í þau á síðunni og setja “.amxx” fileinn í plugins möppuna í addons\amxmodx\
og “.sma” fileinn í scripting möppuna.
Seinast þarftu að bæta línu neðst í plugins.ini filenum sem er í config möppunni með heitinu á pluginsinu eins og : “bullet_damage.amxx” (án gæsalappa)

Seinasta sem þú gerir er að fara í scriptings möppuna og ferð í dáldið þar sem heitir compile.exe og lætur það keyra sig og ýtir á enter.

Prófaðu að keyra server og skrifa amxx í console á servenum.. ef koma niður fullt af skipunum þá ertu með amx =)

Svo geturu prófað þig áfram í alls konar auka dæmi tengt amxx.

Vona að þetta hjálpi einhverjum.