LOKSIN LOKSINS, er kominn aðstaða fyrir tölvuleikja klön til að æfa sig á lani.
Staðurinn heitir LanSetrið og er til húsa að Dalvegi 24, annari hæð.
Stefnt er á að halda opnunarhátíðina þann 1. September með látum.

Salurinn rúmar 20 manns að spila í einu, og kostar aðeins 150 kr klukkutíminn.
Að spila í Gamedome í kringlunni, hef ég heyrt að það kosti 500 kr fyrir einn klukkutíma. En what ever, það eina sem þarf að hafa með sér er tölvan, skjárinn, lyklaborðið, músin og ef þið notið GameVoice eða Battlecom þá þarf að hafa þann búnað einnig með. Ef að menn eru vanir að nota server til að keyra upp Tölvuleikinn, þá þarf einnig að koma með serverinn fyrir hvern og einn hóp.

En í framtíðinni verður þetta mikið veglegri aðstaða, það er bara verið að starta þessu eins og er. Seinna meir verður þetta mjög skemmtileg aðstaða fyrir leikjafíkla.

Látið ykkur ekki vanta á opnunarhátíðinni þann 1. September. Á opnuninni verða tvö klön sem munu spila Counter-Strike.


Nánari upplýsingar um LanSetrið fást hjá undirrituðum.

[]UN[]F.U.B.A.R.

oskar@jonsson.gs

fubar@unclan.inbox.as

Eða í síma: 861-6042 á kvöldin og um helga
[]UN[]F.U.B.A.R.