Sælir CS spilarar góðir sem og aðrir.

Ég ákvað að skrifa þessa grein þar sem margir eru farnir að efast um framtíð CS spilunar á Íslandi. Nei alls ekki segji ég, ég neita að trúa því. Þessvegna hef ég ákveðið að reyna að lífga aðeins upp á #Counter-strike.is rásina okkar góðu. Núna nýverið er búið að ráða nýja RCONa til starfa og þeir eru eftirfarandi:

blabe
chmztry
critical
j1nx
omedeus
plee
revolver
surgur
trasgress
vargur

Nú þeir munu hanga á #Counter-Strike.is til að fá hack report og önnur skemmtilegheit.

Svo eru enn gamlir RCONar þarna eins og ég, noname, zippo og fleiri.

Nú ég vil endilega nýta tækifærið og biðja aðra admina og rcona frá öðrum serverum til að idlea #Counter-Strike.is og munu þeir fá opp á bottana (talið bara við mig á irc ekki spamma rásina í guðana bænum). Einnig ef þú ert mikill tæknigúru sem getur aðstoðað okkur n00bana við ýmsar cs skipanir og þessvegna bara allskonar vesen sem tengist tölvum og cs spilun er þér velkomið að vera active á rásinni og hver veit nema að þú endir með op :).

Þar sem scrimrásirnar eru með alveg endalaust af idlerum hljótum við nú að getað tekið okkur til í andlitinu og gert #Counter-Strike.is aftur að stórveldinu sem hún eitt sinn var.

Takk fyrir mig.
"Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life." -Confucius