Sælir kæru NS spilarar,

Nú er komið að því að halda annað af þessum alræmdu NS LÖNUM™ okkar ásamt annari NS paintball ferð.

Já, nú á að gabba fólk í NS LAN™ og paintball aftur, eftir mikla lukku síðast (fórum meira að segja í grill og djamm heima hjá einum gaurnum eftir á). Planið er að hafa þetta á sunnudaginn næstkomandi, þann 23. október. Þá var hugsunin sú að NS LANIЙ mundi byrja um hádegi og standa fram eftir degi, þegar painballið tæki við um kvöld.

Á NS LANINU™ verður spilað NS (auðvitað) sem og Dawn of War, sem af enhverjum ástæðum treður sér alltaf að á NS LANI™. Ég ætti kannski bara að kalla þetta NS/DoW lan og paintball heh… og væri þá ekki húmor að skipta liðunum í Frontiersmen og Imperial Guard í paintballinum? Eða kannski krydda þetta enn meira og kalla annað liðið “DA ORKS” og banna þeim að hitta neitt að ráði en láta þá aftur á móti garga WAAAGH! úr öllum sínum lungum og hlaupa blóðþyrstir í andstæðinginn með stóra kjötexi (Big Choppa) í annarri hendinni? Pæling…

Hitt liðið gæti þá verið… ég veit ekki… Eldar? Og hlaupið um voða graceful og supergay í hegðun klæddir Brynjum úr Geðsjúklings-Plasti (Psycho-Plastic). Uberman, sem spilar ekkert nema Space Marines gæti þá fyllt fötin sín af svamppúðum og hlaupið um sem einhver beefy gaur í heimasmíðuðum power armor og garðklippur sem hann kallar “chainsword”. Og Nosebleed, ef hann væri meðal oss en ekki fluttur undercover til ónefnds lands “til að læra á þyrlu”, en er í raun þar til að njósna um og gera tilraunir á Repúblikönum fyrir okkur… hann væri þarna með sitt impression af Chaos Space Marine öskrandi “DO YOU HEAR THE VOICES TOO???” klæddur einhverju verulega oddhvössu með brjálaðann svip á lofti… talandi um það, með Nosebleed farinn hver verður þá aðal hoboinn á svæðinu? Nýr Nosebleed óskast. Verður að vera industrial-level hobo og borða úr ruslatunnum að minnsta kosti 6 sinnum í viku. Plús það að vinna líka í stórmarkaði eins og hann og geta komið með ASSLOAD af fríu snakki handa okkur myndi heldur ekki skemma fyrir.

En jæja, ef þú vilt vera með, hafðu þá samband við mig, t.d. á irc (þar sem ég kalla mig The_Sage) eða spurðu um þetta á #ns.is. Þú getur líka sent mér skilaboð en það er oftast seinvirkara en irc.

Vona að ég heyri í sem flestum

Credits:
The Sage - Writer and Event Organizer
OBhave - Editor, Bullshitter and Literary Consultant
Desidius - Useful Contact
Slayer - Insidious NoobWaffle