Þar sem nýja uppfærslan á Counter-Strike kom með þann möguleika að hafa hreyfanleg ökutæki hafa alls konar útfærslur á bifreiðum skotið upp kollinum. Menn hafa eytt ótrúlegum tíma í þetta eina borð í CS-b7 sem hægt er að keyra um. Auðvitað fá menn leið á þessu og voru komnar kröfur um að það mætti nú koma inn fleiri borð þar sem þessi möguleiki er fyrir hendi að geta keyrt þau ökutæki sem eru þar.

Nú eru komin 2 ný borð þar sem leikmenn geta keyrt um að vild og ekkert sparað glannaskapinn. Þetta er nú leikur ekki satt :o) Hægt er að nálgast borðin á eftirfarandi vefslóð
http://www.tfortress2.de/englisch/index2.shtml
borðin eru:
cs_sibiria_apc
cs_siege_apc

Mæli ég með að menn verði sér út um þessi borð því þessi hlutur er kominn til að vera, það er engin spurning. Skemmtið ykkur.
Dreitill out
Dreitill Dropason esq.