Strax í gær komu fram nýjar hugmyndir af faratækjum í CS. Hugmyndir eins og skriðdreki og trukkur hafa fengið góðar undirtektir og er vonandi stutt í það að þetta muni líta dagsins ljós í CS heiminum. Á þessari netslóð er hægt að skoða þau farartæki sem munu vonandi vera notuð í framtíðinni
http://www.geocities.com/SoHo/Studios/3739/vehic.html

Nýja betan hefur fengið mjög gott umtal og vonandi á það eftir að auka áhuga mann á að byrja að spila þetta af viti í vetur. Nú þegar er hægt að nálgast umfjallanir þar sem nýjungarnar eru teknar fyrir og grandskoðaðar. Nýja beta er að fá misjafnar einkunnir en flestir eru mjög jákvæðir yfir breytingunum. Hérna er hægt að nálgast eina umfjöllun um breytingarar
http://theforge.thebackburner.com/articles/a-CSB7.htm

Gaman að vita til þess að CS áhuginn hér á landi eftir sumarið sé að vaxa svo um munar. Mun undirritaður einnig lofa að láta sjá sig meira á serverum næstu vikur og mánuði.
Takk fyrir mótið allir CS spilarar
gg

Dreitill out
Dreitill Dropason esq.