Hin íslenska NS hjálp uppfærð fyrir NS 3.0


Sælir, allir!

Hér er NS hjálpin, uppfærð fyrir NS 3.0 og nú með QUICK HELP eða stuttri hjálp á undan, fyrir þá sem vilja ekki lesa mikið áður en þeir byrja að spila, eða vilja lesa grunnatriðin fyrst og síðan lesa ítarlegu hjálpina.




Stutta hjálpin (mæli mjög með henni fyrir alla byrjendur):

Hæ. Þessi partur greinarinnar er stuttaralegur í máli eins og þið sjáið. Hér segi ég fljótt frá því sem ÞARF að vita til að geta spilað NS leik.

Í NS berjast marines og aliens. Það eru tvær útgáfur af NS: “Combat”, og “NS classic”. Combat er mjög gott fyrir byrjendur því það er uber-einfalt og maður missir ekki neitt þegar maður deyr… maður bara respawnar aftur með allt sem maður var með áður.

ATH. Að íslenski Simnet NS serverinn spilar combat þegar fáir eru inná og NS classic þegar margir eru. Ef þú vilt bara spila combat fyrst um sinn og prófa þig áfram með hin ýmsu vopn og aliens og svoleiðis þá eru til margir útlendir serverar merktir “Combat Only” sem keyra eingöngu combat.

Það sem combat gengur út á er að drepa óvininn til að fá XP. Þegar maður græðir nóg XP fær maður level. Þegar þú átt eitt eða fleiri level inni þá sérðu +1, +2, +3… neðst á skjánum. Þú notar level til að kaupa þér vopn og betri brynju og svoleiðis, þannig verðurðu öflugri. Til að kaupa þarf að ýta á hægri músartakkann (nema þú hafir breytt takkastillingunum), færa músina á það sem maður vill kaupa og smella á vinstri músartakkann. Þú getur keypt allt sem er ekki grátt. Ef eitthvað er grátt þá áttu ekki nóg level fyrir því eða þú þarft að kaupa eitthvað annað fyrst (allt sem þú kaupir þarf að tengjast út frá miðju valmöguleikanna… þetta er mjög einfalt viðmót).

Þannig verður maður öflugri í combat. En til að vinna combat þarf að eyðileggja bygginguna hjá hinu liðinu. Hjá aliens er það stórt bú sem hangir úr loftinu (hive) og hjá marines er það brynvarinn tölvustóll (command chair). Ef hvorugt lið nær að eyðileggja bygginguna hjá hinum áður en tíminn rennur út þá vinna aliens og nýtt round byrjar.

Einfalt, skemmtilegt og góð leið til að verða góður í að skjóta/berjast. Combat er málið fyrir byrjendur. Ætli ég mæli ekki líka með því að þið prófið marines fyrst… auðveldara að fatta þá, að spila aliens er ólíkt hefðbundnum skotleikjum.

Svo er hér útskýring á draslinu í leiknum sem hægt er að fá sér, bæði í combat og classic.


**Vopn hjá marines:

Aðal vopnin, vopnin sem eru undir takka 1 (Getur bara haft eitt aðal vopn í einu).
Light Machine Gun (lmg): Vopnið sem marines byrja með.
Shotgun (sg): Haglabyssa.
Heavy Machine Gun (hmg): Þung og öflug vélbyssa.
Grenade Launcher (gl): Sprengjuvarpa.

Pistol er alltaf númer 2 og er gott vopn á löngu færi eða ef maður klárar skotin í aðal vopninu.

Hnífurinn er alltaf númer 3

Auka dótarí er í númer 4:
Welder: Logsuðutæki. Notað til að laga byggingar eða brynjuna hjá öðrum marines.
Grenade: Handsprengja
Mine: Jarðsprengja. Settu þetta á jörðina eða veggi og ef óvinur kemur nálægt þá springur hún.

Svo geta marines “klætt sig í” annað hvort:

Heavy Armor (HA): Stór, massíf, vélknúin brynja, mjög sterk.
eða
Jet Pack (JP): Eldflaug á bakinu sem maður getur flogið með (halda inni hopp takkanum).


Marines geta líka fengið sér uppfærslur í skaða sem vopnin gera eða hversu sterka brynju þeir eru með. Þessar uppfærslur eru gera mann alltaf hlutfallslega betri, sama hvaða annað rusl maður er með.

Armor 1, Armor 2, Armor 3.

Weapon 1, Weapon 2, Weapon 3.

Önnur uppfærla sem hægt er að fá sér og sem maður hefur alltaf: Motion Tracking… með þessu sér maður aliens gegnum veggi, svo lengi sem þær hreyfa sig……




**Hjá aliens:

Aliens verða öflugri með því að breyta sér í stærri/sterkari/hraðari skrímsli og fá sér uppfærslur og hæfileika (hæfleikarnir eru eins og vopn hjá marines og eru valdir með sömu tökkum). Allt sem er keypt hjá aliens er keypt með sömu “ýta á hægritakkann og velja svo” aðgerð og hjá marines. Allar aliens byrja með hæfileika 1 og 2 en þurfa í combat að kaupa sér “Unlock Next Ability” til að fá næsta hæfileika.

Skrímslin sem hægt er að vera hjá aliens:

*Skulk: Lítið mjótt scary gimp með gadda fyrir fætur. Hraður en þolir ekki mörg skot. Aliens byrja sem þessi skepna. Skulkinn getur labbað á hvaða yfirborði sem er, gólfi, veggjum, loftum. Hæfileikar skulksins eru:

Vopn 1: Bíta. Frekar öflugt, þarf bara 2 bit á marine með venjulega brynju. KJAMMS!
Vopn 2: Skjóta sníkjudýri í óvininn, gerir næstum engan skaða en leyfir öllum aliens að sjá hvar hann er gegnum veggi.
Vopn 3: Leap. Öflugt stökk í áttina sem þú horfir. Það er nauðsynlegt að kunna að skipta hratt á milli að leapa og bíta til að geta verið góður með skulk.
Vopn 4: Xenocide (xeno). Sjálfsmorðssprenging. Mjög öflug.


*Gorge: Feit vera á fjórum fótum. Hægur og þolir ekki mikið. Í NS classic byggir þessi byggingar, en ekki í combat. Þessi vera er ekki góð í bardaga, nema með web >) . Hæfileikarnir eru:

Vopn 1: Spit: Spíta út úr sér smá bolta af sýru. Ekki sérstaklega öflugt.
Vopn 2: Heal Spray. Þetta spray healar (læknar) liðsfélaga og byggingar liðsins, en meiðir marines örlítið.
Vopn 3: Bile Bomb. Stór kúla af galli sem gaurinn ælir upp úr sér. Gerir mikinn skaða á marine byggingar en gerir EKKERT, ALLS EKKERT á marines.
Vopn 4: Web. Klístraður vefur sem strengist milli þeirra staða sem maður skýtur með þessu vopni. Ef marine labbar í vefinn festist hann og getur ekki skotið í nokkrar sekúntur. Þetta er gott til að setja upp gildrur og til að festa óvini á staðnum ef maður er nógu snöggur með þessu.


*Lerk: Fljúgandi skrímsli. Hraður og þolir sæmilega mikið. Getur verið góður í bardaga en nýtist best til að vinna með öðrum aliens. Hæfileikarnir eru:

Vopn 1: Bíta.
Vopn 2: Spore Cloud (stink). Býr til grænt ský sem meiðir marines sem eru ekki í Heavy Armor.
Vopn 3: Umbra. Býr til gult ský sem stoppar part af byssukúlum sem fara í gegn og hlífir liðsfélögum inní skýinu eða á bakvið það. Mjög öflugt ef notað rétt með öðrum aliens.
Vopn 4: Primal Scream. Stríðsöskur sem gerir allar aliens nálægt þér hraðari og öflugri. MJÖG ÖFLUGT ef notað með öðrum aliens.


*Fade: Stórt kvikindi, það eina sem gengur á tveim fótum hjá aliens. Getur farið mjög hratt ef hann á energy (guli barinn hægra megin á skjánum) og þolið mikið af skotum áður en hann deyr. Hæfileikarnir eru:

Vopn 1: Swipe. Að höggva óvininn með risastórum sverðhöndum.
Vopn 2: Blink. Fadinn notar blink (blinkar) til þess að svífa hratt gegnum loftið meðan hann á energy. Það er nauðsynlegt að kunna að skipta hratt á milli blink og swipe til að vera góður með fade.
Vopn 3: Metabolize. Healar sjálfan sig fyrir energy.
Vopn 4: Acid Rocket. Skýtur sýrueldflaug í óvininn. Þetta vopn er ekkert sérstaklega gott í NS 3.0 :( .


*Onos: RISA HUMO-N-GOUS ANDSKOTI. Algjör skriðdreki og gengur frekar hægt (jafn hratt og marines samt, hehe). Þolir MIKIÐ af skotum áður en hann deyr. Hæfileikarnir eru:

Vopn 1: Að dúndra í gaura með horninu… Fyrir utan að vera uber öflugt venjulega gerir það tvöfaldan skaða á byggingar!
Vopn 2: Devour. Að éta marines í heilu lagi, gleypa þá með húð og hári og melta þá áður en þeir deyja. Best er að gleypa Heavy Armor gaura því þeir myndu þola mikið af líkamsmeiðingum áður en þeir dyttu dauðir niður.
Vopn 3: Stomp. Að stappa fætinum niður, og lama gaura fyrir framan sig með höggbylgjunni í svona 2 sekúntur. Gott er að stompa gaura og gleypa þá síðan meðan þeir geta ekki hreyft sig.
Vopn 4: Charge. Að hlaupa sjúklega hratt og meiða allt sem verður í vegi manns. Þegar maður kveikir á þessu getur maður notað önnur vopn en hleypur samt hratt þangað til energy klárast.

Jæja þá eru öll skrímslin og hæfileikar/vopn þeirra upptalin




ATH! Það sem ég sagði með að þurfa að geta skipt hratt á milli vopna til að geta verið góður með skulk og fade… það er ekki svo erfitt ef þið notið smá trick sem ég ætla núna að kenna ykkur: Q takkinn, hann er venjulega (nema þið hafið breytt) stilltur á að skipta í það vopn sem maður var með valið áður en það vopn sem maður er með núna (previous weapon). Þannig að, til að skipta hratt á milli leap og bite með skulk:

Veljið bite.
Skiptið síðan í leap.
Síðan getið þið endalaust notað Q takkann til að skipta á milli þessa tveggja, sem sagt stokkið út um allt og bitið gaura hratt. Easy peasy!

Sama gildir auðvitað með blink og swipe hjá fade.



**Svo á eftir að telja upp uppfærlslurnar sem aliens geta keypt sér.

Uppfærslurnar falla í 3 flokka. Defence, Movement og Sensory. Maður ýtir á hægri mús, velur að fara í upgrade, fer síðan í einhvern þessara flokka og velur svo uppfærluna. Easy.

ATH að áhrif hverrar uppfærslu eru mismunandi eftir því hvaða skepna maður er. Þó maður skipti um skepnu heldur maður samt eftir uppfærslunum.

*Defence uppfærslur:
-Carapace: Gefur manni meiri brynvörn.
-Regeneration: Healar mann sjálfkrafa.
-Redemption: Ef maður er alveg að deyja, þá gefur þetta manni ákveðnar líkur á að bjargast lifandi aftur í hive.

*Movement uppfærslur:
-Celerity: Maður ferðast mun hraðar hvort sem maður hleypur/flýgur/whatever.
-Adrenaline: Lætur energy hlaðast mun hraðar upp hjá manni aftur.
-Silence: Gerir mann algjörlega hljóðlátann. Heyrist ekkert í manni þegar maður hleypur/flýgur/stekkur/whatever, né heldur þegar maður gerir árás. Það eina sem heyrist er hold óvinarins að rifna, múhahaha.

*Sensory uppfærslur:
-Focus: Árásir manns eru 60% öflugri, en líka 60% hægari. Maður gerir jafn mikinn skaða yfir jafnan tíma en þetta leyfir manni hugsanlega að drepa óvininn í fyrsta biti/höggi, nú eða framkvæma nokkurskonar “drive-by” með hröðum gaurum, eins og lerk, skulk eða fade.
-Scent of Fear: Með þessu geturðu séð nálæga óvini gegnum veggi.
-Cloaking: Gerir þig ósýnilegan þegar þú stendur kyrr eða labbar hægt.




———————————————————–
Og þá er ég búinn að kenna ykkur hratt allt sem þarf að vita til að geta spilað combat og kunnað að berjast í NS classic. Nú mun ég telja upp snöggt það sem þarf að vita til að spila NS classic:
———————————————————–



**Byrja á hvernig marines myndu fara að því að vinna.

Marines byrja alltaf á sama stað í borðinu. Þeir þurfa að láta einn mann vera commander. Commander setur niður byggingar og deilir út vopnum úr vopnabúrinu. Marine liðið þarf að byggja base til að geta respawnað þegar þeir deyja (halda inni E á byggingu til að byggja). Marines þurfa að fylgja waypoints sem commander gefur þeim og nota halda inni C til að sjá kort ef þeir rata ekki. Muna að fá sér sæmilega af ammo úr armory (halda inni E) áður en þið yfirgefið base. Gott er fyrir marines að halda hópinn og fara 2 eða fleiri saman. Þannig gengur þeim mun betur að berjast, byggja og halda hvor öðrum lifandi.

Marines þurfa síðan að ná sér í res, með því að byggja Res Towers (RT) á gráum stútum sem hvít gufa kemur úr. Þeir þurfa að berjast við að halda þessum RT-um sínum ef þeir ætla sér að græða res.

Marines þurfa síðan að nota resið til þess að verða öflugri. Rannsaka uppfærslur og kaupa öflugri vopn og síðan fá Jet Packs eða Heavy Armor. Allt þetta drasl kostar res og marines þurfa að forðast að deyja því þá missa þeir það og commander þarf að kaupa aftur. Ef marines eru saman í hóp og gaur með shotgun/hmg/gl deyr þá getur annar marine sem er með lmg tekið upp byssuna áður en hún hverfur. Það er mjög gott því þá þarf ekki að kaupa aðra.

Marines þurfa að hindra aliens í að ná að byggja hive á hive stöðum í borðinu. Því fleiri hive sem aliens eiga því öflugri eru þeir.

Á endanum þurfa marines að eyðileggja öll hive hjá aliens. Þá geta aliens ekki respawnað og þeir deyja út án þess að eiga hive. The end, marines vinna.

ATH! Mikilvægt fyrir marines er að vita hvað “Phase Gate” (PG) er. Það er glóandi pallur sem maður á að standa við hliðina á (ekki ofan á, annars gætirðu drepist) og ýta á E. Þá er maður fluttur samstundis í næsta PG og svo koll af kolli. Þannig komast marines hratt milli staða í borðinu.

Annað ATH! Að vera commander er erfitt fyrir byrjendur. Maður þarf að skilja leikinn mjög vel og herkænskuna bakvið hann. Ég mæli sterklega með því að þið spilið marga leiki bæði sem marine og alien áður en þið prófið að vera commander. Lærðu af reyndum commanderum sem þú sérð á server. Ef þér finnst þú ekki enn hafa áttað þig mjög vel á leiknum, en enginn annar býður sig fram í að vera commander, gætir þú sagt “ég get verið comm en ég er byrjandi sko ;)” og séð hver viðbrögðin eru… ef hinir í liðinu eru sáttir við að þú prófir eða bjóða sig samt ekki fram sjálfir þá er allt í lagi fyrir þig að skella þér í stólinn…. meina hinir geta ekki kennt þér um þó að þú sért ekki alveg að fatta þetta strax, ef þeir vildu ekki sjálfir vera comm =)




**Síðan hvernig aliens myndu vinna:

Það eru 3 staðir í borðinu þar sem hægt er að gera hive. Aliens byrja á einum slíkum stað, með 1 hive. Aliens þurfa að ná sér í res með því að breyta sér í gorge (hægri mús) og byggja RT (á stöðunum þar sem hvíta gufan kemur upp, auðvitað). Þeir þurfa síðan að halda þessum RT ef þeir ætla sér að geta grætt res.

Aliens þurfa að byggja eina af þremur uppfærslubyggingum. Defence Chamber, Movement Chamber eða Sensory Chamber. Oftast er byggður Defence Chamber fyrst. Menn spyrja líka oftast liðið áður en þeir byggja, en enginn verður pirraður ef þú gerir DC fyrst. Aliens þurfa að byggja 3 stykki af hvaða chamber sem þeir velja fyrst til að uppfærslurnar þeirra séu eins öflugar og hægt er. Þeir mega ekki gera aðra tegund af chamber fyrr en þeir fá næsta hive.

Síðan þurfa aliens náttúrulega að NOTA þessar uppfærslur. Velja sér uppfærslu úr þeim flokki sem til er með hægri mús (og fara svo í upgrades).

Ennfremur þurfa aliens að breyta sér í öflugri skepnur. Fade, lerk og að lokum, onos.

Aliens þurfa líka að byggja fleiri hive (á hive stöðum náttúrulega). Muna að bara gorgar geta byggt. Aliens verða öflugri við það að eiga fleiri hive því að þá geta þeir spawnað hraðar, og þegar þeir eiga 2 hive geta skrímslin þeirra notað vopn númer 3 og þegar þeir eiga 3 hive geta menn notað vopn númer 4.
Sem sagt, því fleiri hive sem aliens eiga, því öflugri eru aliens. Ef aliens tapa hive þá tapa þeir líka vopnum/hæfileikum. Aliens VERÐA að passa vel upp á hive-in sín, og verja þau ef einhver kallar að marines séu að gera árás (sérstaklega er slæmt ef að marines setja upp phase gate hjá hive, því þá geta þeir komið að hive-inu endalaust þangað til aliens eyðileggja þetta phase gate.)

Síðan þurfa aliens að eyðileggja base hjá marines og taka út litlu pallana sem þeir spawna í sem heita Infantry Portals (IP). Síðan þarf að drepa alla marines sem eru eftir og þá vinna aliens.





—————————————————–
Hér er svo upptalning á byggingunum hjá báðum liðum. Þetta er kannski komið út í ítarlega hluti hérna þegar ég tel þær allar upp, og kannski viljiði spila nokkra leiki áður en þið lesið þetta, en þetta er allavega nauðsynleg upptalning til að vita þó hvað allt ER í NS classic leik ;)
—————————————————–


**Marine byggingar:

Command Console (CC): Hér fer commanderinn inn til að stjórna. Það er hægt að byggja annan annarsstaðar, ef gamli er að verða eyðilagður. Ef sú staða kemur upp að marines eiga engan CC eru þeir að öllum líkindum glataðir, og verða þurrkaðir út á endanum.

Infantry Portal (IP): Er bara hægt að byggja nálægt CC. Í þessu spawna marines. Því fleiri IP sem marines eiga því fleiri geta spawnað í einu. Ef marines eiga engin IP og deyja allir vinna aliens samstundis.

Armory: Vopnabúrið. Hér geta marines fengið skotfæri (og health) með því að halda inni E takkanum. Nálægt þessarri byggingu getur commanderinn útdeilt vopnum.

Arms Lab (AL): Hér getur commanderinn uppfært styrk vopna og brynvarnar hjá marines. Uppfærslurnar Armor1, Weapon2 allt það dótarí…

Observatory (obs): Hér getur commanderinn rannsakað tækni til að byggja phase gate sem og Motion Tracking (MT) uppfærsluna fyrir marines. Þessa byggingu notar comminn líka til að scanna svæði. Þegar comminn scannar svæði þá sjá marines hvað er þar, hvort sem það er ósýnilegt eða ekki. Þessi bygging veldur því líka að aliens geta ekki verið ósýnilegar nálægt þessarri byggingu yfirleitt. Ennfremur er hægt að gera “distress beacon” með þessarri byggingu, sem sendir alla marines í neyðartilfelli á byrjunarstað sinn í borðinu.

Phase Gate (PG): Með því að ýta á E á þessa byggingu ferðast marines milli staða. Passa sig að standa ekki ofan á PG þegar gaur kemur í gegn því þá deyrðu.

Prototype Lab (protolab): Hér rannsakar comminn Jet Pack (JP) og Heavy Armor (HA) tækni. Nálægt þessarri byggingu er svo hægt að útdeila JP og HA til hermannanna.

Turret Factory (TF): Nálægt þessarri byggingu má byggja turrets. Ef TF er uppfært má byggja siege cannons nálægt líka. Ef TFið er eyðilagt þá hætta nálægir turrets og siege cannons að virka.

Turret: Lítil byssa á þrífæti sem skýtur sjálfkrafa aliens sem hún sér.

Siege Cannon (siege): STÓR byssa á þrífæti sem skýtur sjálfkrafa alien BYGGINGAR og aðeins byggingar á ákveðnu færi GEGNUM VEGGI MEIRA AÐ SEGJA… svo lengi sem commanderinn scanni eða marines sjái það sem þarf að skjóta.


Bæði lið hafa svo auðvitað Resource Tower (RT) til að græða res, þó byggingin líti auðvitað mismunandi út hjá sitthvoru liðinu.

**Alien byggingar:

Hive: Aðeins hægt að byggja á hive stöðum. Hér spawna aliens. Hér fá aliens heal. Því fleiri hive sem aliens eiga því fleiri og betri vopn fá þær og verða öflugri.

Defence Chamber (DC): Gefur DC upgrades. Healar allar aliens og alien byggingar nálægt.
Movement Chamber (MC): Gefur MC upgrades. Hleður energy hratt á aliens nálægt. Ef þú ýtir á E á þessa byggingu ertu samstundis fluttur í fjarlægasta hive miðað við núverandi stöðu þína.
Sensory Chamber (SC eða sens): Gefur SC upgrades. Gerir allar nálægar aliens og alien byggingar ósýnilegar. Með þessu cloak mega aliens hlaupa án þess að verða sýnilegar.
(Sjá nánari skýringar á uppfærslunum fyrir ofan. Oftast eru chamberarnir byggðir í þessarri röð: DC-MC-SC)

Offence Chamber (OC): Bygging sem skýtur sjálfkrafa á óvini. Hún er ekki það öflug, og þó þú gerir 10 OC þá er hægt að þurrka það út með 1 siege. Þess vegna á ekki að treysta mikið á OC, gera frekar upgrades eða hive fyrir liðið eða fara í lerk, fade eða onos og berjast þar sem þín er þörf, drepa óvininn og þeirra RT og að bjarga hive eða þínum eigin RT þegar þarf.



Jæja þá er ég búinn að útskýra snögglega í berum grundvallaratriðum hvernig á að spila NS classic líka. Þetta er alveg nóg lestur til að geta farið á server og fattað leikinn ágætlega. =) have fun, en komið aftur og lesið restina þegar þið viljið dýpri vitneskju í NS classic ;)













————————————————————————-

Í restinni af hjálpinni er fjallað ítarlega um NS classic. NS classic er oftast kallaður einfaldlega NS, því þetta er sko alvöru NS. Combat er easy action, en NS er sko STRATEGY leikur. Þetta er bæði Real Time Strategy (RTS) og First Person Shooter (FPS) leikur og sá besti sinnar tegundar hingað til. Battlezone 1, Battlezone 2 og nú nýlega Savage eru önnur dæmi um RTS/FPS leiki en þeir komast sko ekki með tærnar þar sem NS hefur hælana og ég hef spilað þá alla mikið sko. Eins og fyrr segir er hér farið ítarlegar í þetta og þið ættuð reyndar að vera bara nokkuð damn good í leiknum eftir að lesa restina og fá síðan reynslu af því að spila á server. ;-)

Ítarlega hjálpin um NS classic skiptist í eftirfarandi yfirkafla og undirkafla:

>Leikreglur:
>Grunnhugtök:
*Kortið
*Resources
*Commander
*Nýja Hotkey kerfið hjá Commandernum
*Hive sight
*Hive
>Ítarlegri hugtök, ráðleggingar og aðferðir
*Siege
*Scan
*Turret Farm
*Mikilvægi Welder-sins
*Almennar ráðleggingar fyrir Marines
*Healing base og MC Turbo heal
*Lerkinn er support class
*Almennar ráðleggingar fyrir Aliens

>NS-Íslensk orðabók
*Hjá/Um Marines
*Hjá/Um Aliens
*Almennt/Bæði lið
*Áttavita-kortatalsmátinn

===||Leikreglur:||===

Það er frekar leiðinlegt að margir nýir skuli mæta inn á server og spila (og dæma) leikinn án þess að vita allavega út á hvað hann gengur. Það er náttúrulega fáránleg spilun. En leikreglurnar eru einfaldar:

Það eru tvö lið: “Frontiersmen”(Marines, stundum stytt í “Rines”) og “Kharaa”(Aliens). Liðin eiga að *útrýma* hvort öðru, þ.e. tryggja að óvinurinn geti ekki spawn-að og drepa þá síðan. En hvernig er þetta gert? Aliens eyðileggja bækistöðina hjá Marines (byggingar sem heita “Infantry Portal” (IP) nánar tiltekið sem marines spawna úr) og Marines eyðileggja Hives hjá Aliens. Ok hljómar nógu einfalt, en hvað þýða öll þessi hugtök?







===||Grunnhugtök:||===




Kortið

Áður en ég byrja á neinu vil ég minnast á “c mappið” (overhead map, kort af borðinu) sem allir (nema commander því hann hefur öðruvísi kort) geta séð með því að halda inni C takkanum (nema þú hafir breytt tökkunum). Þetta mapp er mjög nauðsynlegt upp á að sjá hvað er að gerast hjá liðinu þínu, og til að rata milli staða í borðinu. Þú sérð hvernig mappið liggur, hvar þú ert (þú ert sýndur sem lítil mynd af marine eða alien sem hefur gula keilu sem táknar hvert þú horfir. Þessi mynd snýst og hreyfist með þér), hvar liðsfélagar þínir eru og hvar byggingarnar ykkar eru (og þar með bækistöðvarnar). Þú sérð líka rauð icon fyrir óvina byggingar og leikmenn, þegar einhver í þínu liði sér þau.

Til að summa þessu upp tákna litirnir sem sagt:

Græn mynd: Þú, og menn sem eru með þér í squad, ef þú ert marine.

Hvít mynd: Liðsfélagar, eða byggingar sem liðið þitt á.

Rauð mynd: Óvinir, eða byggingar sem hitt liðið á.




Resources: (Stytting: Res, ísl. þýðing: Auðlindir, sumir kalla þetta “pening”)

Það má segja að res sé það sem leikurinn snýst um. Þetta er auðlind sem er notað til að byggja allt hjá Aliens og Marines. Liðin geta aukið “res flæðið” inn til sín með því að byggja Resource Tower (RT) ofan á Resource Node (stútur sem hvít gufa kemur upp úr, merktur inn á “c kortið” sem grá mynd af hringlaga stút).

Það mikilvægasta sem þarf að vita er að því fleiri RT sem lið á, því meira res fær það lið á sekúntu.

Sem sagt, til að summa upp þá gengur þetta svona fyrir sig á server:

Res = Einingar af auðlind sem er notað til að byggja og gera allt. Eins og þegar einhver segir: “Ég á bara 6 res”.

“RT” = Resource Tower, byggingin til að græða res

Það er líka hægt að græða smá res með kills (1-3 res fyrir hvert kill). Hjá marines fer þetta res í þeirra sameiginlega pott, hjá aliens fær sá sem drap resið.

Hafið í huga að *res er tími*. Þú færð res, mishægt að vísu, en hægt með tímanum. Ef þú eyðileggur eitthvað hjá hinu liðinu þá tekur tíma fyrir þá að safna fyrir því aftur. Ef þú eyðir öllu byrjunar res-inu, án þess að byggja neitt RT í byrjun (sem commander eða gorge), þá ertu í djúpum skít. Að safna fyrir að byggja RT, meðan þú ert bara með 1 RT til að gefa þér res flæði, tekur laaangan tíma. Tími sem óvinurinn mun nota til að verða öflugri.




Commander: (stytting: Comm.)

Sá sem öllu ræður hjá Marines. Commanderinn ræður hvar og hvað skuli byggt (commanderinn “droppar” byggingunum, marine byggir), hvað skuli uppfært, rannsakað og framleitt (“keypt”, t.d. vopn og útbúnaður) Til dæmis eru fyrstu skyldur commandersins í leik að byggja allavega eitt Infantry Portal (til að fólk geti respawnað eftir dauða) og Armory (til að fólk geti fengið ammo). Ennfremur ræður Comminn hvar skuli “scannað” og hvert menn eru sendir og hvað þeir eiga að gera. Þetta þarf hann allt að sjóða saman í herkænskubrögð og aðgerðir. Eins og þið sjáið er starf commandersins ekki beint það auðveldasta, en það er misskilningur að halda að góður Comm geti unnið allt. Besti Comm í heimi væri ekkert án þess að hafa góða marines undir sinni stjórn.
Til þess að liðið eignist commander í byrjun þarf einhver að ýta á E (use takkann) á Command Console-ið (oft kallað comm chair eða CC). Þá er gaurinn kominn inn í CCinn og fær upp “Command Interface” eða stjórnunarviðmótið. Það lítur út og virkar ekki ósvipað og í Starcraft (og öðrum Real Time Strategy leikjum). Þetta er áþreifanlegasta sönnun þess að NS er blanda af RTS og FPS (First Person Shooter). Þú horfir niður á allt að ofan, og getur valið leikmenn og byggingar með því að LMB (left mouse button) smella á þær/þá eða halda LMB inni og draga box utan um fólk sem þú vilt velja. Síðan hægrismellirðu (RMB) á þann stað sem þú vilt að Marine(s) fari á. Þeir heyra skilaboð og sjá waypoint (WP) í stefnuna og það er eins gott að þeir fylgi honum =P. Það er skylda Commandersins að samhæfa Marine liðið með waypoints (WPs), og skylda hermannsins að fylgja skipunum. Það opnast ýmsir valmöguleikar við það að LMB smella á hinar ýmsu byggingar, valmöguleikar um uppfærslur og tækni sem hægt er að koma upp í byggingunum, og líka möguleikinn að “endurvinna” (selja, recycla) hana fyrir hluta af resinu aftur. Það tekur smá tíma að “selja” byggingar áður en þú færð resið aftur.
Algengustu og mikilvægustu “aðgerðir” sem commander gerir eru:
Að byggja base í byrjun. Byggja fleiri RTs heldur en þennan eina sem þú byrjar með. Ef marines eiga nóg res vill comminn kannski byggja turrets til að verja base (slatti af turrets er oft kallaður “turret farm” =P). Byggja base i hive-um svo aliens nái þeim ekki. Framkvæma “siege” (anti-alien base aðgerð, meira um það á eftir). Byggja Phase Gates (PG) til að komast hratt milli mikilvægra staða í borðinu.

Alltaf þegar marine biður um skipanir, health eða ammo (með hægri takka menu hjá sér) þá fær Comminn lítinn takka vinstra megin á skjánum með mynd af marine, health pack, eða ammo pack. Ef þú smellir á þennan litla takka, færðu marine-inn sem bað um skipanir/health/ammo strax upp á miðjan skjáinn. Það er líka hringlaga takki með mynd af marine í efra vinstra horninu, þar sem res magnið stendur. Það er “select all” takki, sem velur alla marines, og er mjög nytsamlegur í stórum aðgerðum og neyðartilfellum.
Þú getur líka skipt liðinu þínu (og byggingum) í allt að 5 “Squads” innan liðsins. Þú velur þá sem þú vilt hafa saman í Squad, og heldur inni Crouch takkanum (shift eða Ctrl mjög líklega) og ýtir á tölurnar 1, 2, 3, 4 eða 5. Til dæmis, ég vel 3 marines sem eru góðir saman og ýti á crouch+1. Ég heyri kven-tölvu röddina segja: “Squad 1” og þeir heyra karlmanns Commander röddina segja: “You´re squad 1” og nú stendur neðst á miðjum skjánum þeirra: “You are in squad 1”. Þegar þú ert settur í squad með öðrum þá ert þú ekki lengur sá eini sem er grænn á “c mappinu” þínu, heldur eru allir sem eru með þér í squad grænir. Þegar commander er búinn að setja fólk í squad 1 þarf hann bara að ýta á “1” eða smella á squad-ið uppi í einum af fimm squad reitunum. Hann sér squad-ið blikka rautt þarna uppi ef það er verið að ráðast á þá. Dæmi um hentugleika við að skipta fólki í squad gæti verið að setja alla í squad 1… nú eða skipta liðinu og láta squad sem vinnur öðru megin á mappinu tímabundið í squad 1 og hina hinum megin á mappinu í squad 2. Persónulegt uppáhald mitt er að skipta liðinu í “Assault Team” (HA) og “Response Team” (JP) en þá verðurðu líka að vera með gaura sem hlusta á þig í liðinu.
Það má líka setja byggingar í squad og það getur verið mjög hentugt í ýmsum tilfellum.
Crouch takkinn er líka notaður til þess að bæta við eða fjarlægja hluti úr núverandi selection (vali). Ef þú velur 5 marines en ætlaðir bara að velja 4 geturðu haldið inni crouch takkanum og smellt á fimmta gaurinn til þess að “af-velja” hann. Líka ef þú heldur inni voice takkanum OG crouch takkanum þá geturðu talað bara við þá rines sem eru valdir.




Hotkeys hjá Commandernum:

Eins og þið munuð taka eftir hjá Commandernum, þá er þetta “takkaborð” hjá honum neðst hægra megin á skjánum samansett af 4x3 = 12 reitum (fjórum láréttum röðum, þrem lóðréttum). Efstu reitirnir eru fjórir yfirflokkar af hlutum sem hann getur “droppað” í mappið, hinir reitirnir eru fyrir hluti sem eiga heima í þessum flokkum, NEMA sá sem er neðst til hægri, hann er alltaf geymdur fyrir “Cancel” (hætta við Research eða Upgrade) og “Recycle”, takkar sem þú vilt EKKI reka þig í.
En allavega, hinir fjórir yfirflokkar eru: Build, Advanced, Assist og Equip. “Build” inniheldur byggingar, “Advanced” háþróaðar tæknibyggingar, “Assist” Ammo og Health pakka og “Equip” allt sem Marine gæti hugsanlega borið, frá vopnum til útbúnaðar…….. En hér kemur snilldin: Í staðinn fyrir að byggja “heitlyklana” (=P) á því hvaða stafur er fyrstur í orðinu eins og í flestum öðrum leikjum, þá bjuggu þeir til ímyndað 4x3 Commander “takkaborð” á lyklaborði heimilistölvunnar. Þessir takkar eru (ein röð í einu) qwer, asdf, og zxcv. Efsta röðin, qwer, er fyrir yfirflokkana: Build, Advanced, Assist og Equip. Hinir takkarnir eru fyrir hluti í flokkunum, NEMA “v”… hann er geymdur (rétt eins og reiturinn á “Comm takkaborðinu”) fyrir “Cancel” og “Recycle”. Þetta kerfi er mjög hentug, því nú ertu með takkana þétt saman, þetta er mjög þægilegt kerfi og auðvelt í notkun. Comm sem notar þessa hotkeys er miklu fljótari að öllu heldur en sá sem gerir það ekki.
ATH samt, þessir hotkeys taka yfir aðra lykla sem þú notar sem marine þannig að það eru miklar líkur á að þetta taki yfir “voice” takkann hjá þér (eins og hjá mér, minn var “x”). Ég prófaði mig út úr þessu, reyndi mouse button 4 sem er þægilegt hjá marine en virkar ekki heldur hjá Comm. Þá bindaði ég “Alt” sem secondary takka fyrir voice og hann virkar vel, truflar ekkert annað, en ég mæli ekki með að nota hann hjá marine, því miður á maður það til að kíkja á “Score” listann (tab) ásamt því að tala sem marine, og Alt + Tab = minimizar leikinn og ferð í windows = Viðbjóður.




Hive sight:


“Hive sight” eru aliens að sjá hvorn annan og sitt stuff gegnum veggi. Aliens deila sjón sinni gegnum þetta fyrirbæri. Þegar þú lítur í kringum þig sérðu fullt af táknum sem standa fyrir ákveðna hluti sem eru á bak við veggi (þú sérð ekkert tákn ef það er enginn veggur á milli ykkar, bara hlutinn sjálfann) . Ef þú horfir beint á eitthvað eitt tákn þá færðu nánari textalýsingu á því heldur en táknið eitt segir.

Hér er listi yfir merkingu táknanna og hvaða info texti kemur ef þú horfir beint á táknið:

*Gulir púlsandi punktar, eins og hjartsláttur = Hive (-staður).
Info Texti: Stendur alltaf undir þeim “Hive” og undir því hvaða hive (“Equilibrium Regulation” t.d.)

*Grænn punktur = Player sem er Gorge, skepnan sem byggir. Verja hann.
Info Texti: Nafn players-ins

*Rauður punktur = Eitthvað sem er að meiða sig, bygging eða player under attack (þú heyrir skilaboð um hvort það er Structure, Resource Tower, Life Form eða Hive sem er under attack). Þú ættir verulega að íhuga að fara þangað og hjálpa til, sérstaklega ef þetta er RT og SÉRSTAKLEGA ef þetta er Hive. Sama hvað þetta er þá er þetta allavega tækifæri til að ráðast á marines meðan þeir eru uppteknir við að ráðast á eitthvað annað.
Hafið í huga, þegar þið eruð Marine, að aliens fá viðvörun um leið og þið meiðið hive-ið þeirra, þannig að eins gott að þið séuð tilbúnir þegar þið byrjið að skjóta.
Info Texti: Stendur nákvæmlega hvað eða hver er under attack)

*Hvítur punktur = Liðsfélaga alien (sem er ekki Gorge).
Info Texti: Nafn players-ins

*Svart tóm, umlukið glóandi gulum ljóshring = Marine eða marine bygging sem hefur verið “merkt” með parasite (sníkjudýri… “Vopn” nr. 2 hjá Skulk). Þetta getur líka verið marine, kannski bygging sem liðsfélaga alien er að horfa á. Þið deilið sjóninni svona. Það sem einn sér, það sjá allir.
Enginn Info Texti.

*Rauðir púlsandi hringir = Marines sem þú sérð í gegnum veggi innan ákveðins radíuss með hjálp “Scent of Fear” uppfærslunnar (Evolve Upgrade)
Enginn Info Texti.




Hive: (ísl. þýðing: Bú (eins og í geitungabú))

Hive-ið er mikilvægasta byggingin hjá Aliens. Þær spawna úr því (því fleiri hives því fleiri geta spawnað í einu = hraðara spawn hjá liðinu), þær fá öflugt heal þegar þær standa nálægt því og því fleiri hives sem aliens eiga, því fleiri, og öflugri, vopn (eða öllu heldur hæfileika, þeir virka bara eins og vopn í Half-Life og eru valin með 1, 2, 3, 4 tökkunum) geta þau notað. Eitt hive leyfir líka byggingu á einni af þremur tegundum “Uppfærslubygginga” (Defence Chamber, Movement Chamber og Sensory Chamber). Ef þú til dæmis byggir DC fyrst, með fyrsta hive-inu, þá verðurðu að byggja annað hive áður en þú mátt velja um týpu MC eða sens chamber. Einnig sérðu lista yfir Hive staði í efra hægra horninu á skjánum. Þar getur þú séð hvar liðið er með hive og hversu langt þau eru komin (ef verið er að byggja þau), auk þess sem hægt er að sjá hvaða uppfærslubyggingar eru bundnar við hvert hive (allt þetta sérðu myndrænt þarna uppi hægra megin).
Hive hangir niður úr loftinu á svokölluðum “Hive Stöðum” (Hive Locations, oft bara kallað hive). Þessir staðir eru merktir inn á “c mappið” með mynd af hive-i. Aliens byrja með eitt hive á einhverjum af þrem mögulegum hive stöðum í hverju mappi. Hive (-staðir) sjást alltaf á mappinu sem stór mynd af hive. Það er gott að læra nöfnin á hive-unum í mappinu utan að því það er oft mikið barist um þau. Hive-in eru alltaf við endamörk mappsins, úti í horni eða við “kant”. Þess vegna er auðvelt fyrir þá sem ekki kunna hive nöfn utan að að tala um “suður” hive (neðst á korti) eða norð-austur hive (efst í hægra horni), til dæmis. Meira um svona talsmáta á eftir.






===||Ítarlegri hugtök, ráðleggingar og aðferðir.||===




Siege: (ísl. þýðing á nafnorði: Umsátur (um kastala t.d.)……. ísl þýðing á lýsingarorði: Siege-eitthvað er hlutur sem er sérstaklega gerður til þess að sigrast á sterkum vörnum (Siege Equipment, Siege Weaponry, Siege Cannon)

Siege í NS gengur þannig fyrir sig að Marines finna sér stað sæmilega nálægt hive-i eða sterkum Alien vörnum sem þeir vilja eyðileggja, byggja TF (Turret Factory), uppfæra hana í Advanced TF og byggja allavega eina Siege Cannon (byssa sem getur skotið byggingar gegnum veggi) hjá henni. Til að Siege Cannon geti skotið þarf að “spotta” óvina byggingar innan “range” cannon-sins (comminn sér það sem grænt svæði þegar hann LMB smellir á Siege Cannon-ið), annaðhvort með því að marine horfi á bygginguna eða að Commanderinn scan-i hana (meira um scan á eftir). Klókur comm byggir oft 2-3 Siege Cannons, áður en hann scannar. Þá er vandamálið orðið mun stærra fyrir Aliens þegar aliens vita loksins af því, og þær hafa minni tíma til að bregðast við áður en draslið þeirra verður eyðilagt. Það fer eftir aðstæðum og res-i, hvort menn byggja turrets til að verja siege-ið, armory fyrir rines sem eru að verja siege-ið og PG (phase gate) svo menn geti verið fljótir þangað frá spawni. Rines gætu byggt þetta allt eða ekkert, fer eftir hvort það vantar og hvort það er hægt. Byggingarnar í heild sem sjá beint eða óbeint um siege-ið eru oft kallaðar siege base (as in “damn! we lost our siege base near Feedwater”)




Scan (ísl. þýðing: Skyrbjúgur…. nei djók: að athuga/skoða vandlega. “scan” er oft íslenskað þegar þarf að beygja það “shit, comm skannaðu!”)

Scan er framkvæmt í Observatory (obs) byggingunni hjá marines og er notað í heilmargt. Commander-inn getur notað það til að skoða hvar aliens byrjuðu og hvert þær hafa breiðst út (oft viturlegt að byggja Observatory í byrjun). Það sést allt í nokkrar sekúntur þar sem comminn scannar, hvort sem það er cloakað eða ekki. Þessvegna er það ekki bara notað til að afla upplýsinga, heldur líka í bardögum. Góður marine lætur Commanderinn vita að það sé sensory chamber (sens) nálægt þeim (hann sér það því aliens get hlaupið cloak-aðar á svæðinu) og góður comm myndi þá hjálpa þeim með því að scanna svæðið og finna sens-inn (gefa þeim waypoint á hann kannski líka). Þá geta marines tekið hann út.
Þannig að comminn skannar til þess að kanna svæði, hjálpa rines í bardögum og til að “spotta” fyrir siege. En scan krefst orku og observatory hleður hana smám saman. Þess vegna er oft gott að eiga 2 observatory (ekki byggja þau bara einhversstaðar, þau sjá cloak-aða óvini á ágætum radíus og eru því góð í base-um og á mikilvægum stöðum). Það er frekar mikið vesen að finna observatory á mappinu, LMB smella á það, LMB smella síðan á “Scan” á “takkaborðinu” og LMB smella síðan á svæðið sem þú vilt skanna. Þessvegna mæli ég með að þið setjið observatory-ið á “Squad 5” (sjá “Commander” kaflann fyrir ofan). Þá er þetta mun fljótlegra: Ýtir á “5”, síðan “A” (hotkey fyrir scan, þegar obs er valið) og LMB smellir svo á svæðið sem þú vilt skanna. Scan er nefninlega eitthvað sem maður þarf oft að geta gert fljótt.




Turret Farm:

Það er sorglega algengt hvað margir commar klúðra því að byggja nag-helt turret farm (ekki nota skammstöfunina TF fyrir turret farm…. TF er Turret Factory). Þeir fatta ekki (kannski vegna þess að þeir hafa ekki prófað að vera skulk) að byggja *ekki bara turrets öðru megin*. Svoleiðis TF er kallað “blint”. Þá getur skulk skýlt sér fyrir turret-unum á bakvið TF-ið sjálft, og nagað TF-ið í sundur óáreittur. Þegar TF-ið er dautt, hætta allir turrets hjá því að virka, nema að það sé annað TF nálægt (sjaldgæft að það gerist).

Með þessa vitneskju í huga er ljóst að auðveldasta aðferðin til að taka út turret farm er annaðhvort að finna svona veikan blett, eða búa hann til. Ef það eru 10 turrets öðru megin, og bara einn að verja bakhliðina, nagið þá þennan eina turret og kjamsið síðan á TF-inu, hlæjandi.

Hafið í huga að turret farm hentar ekki við allar aðstæður, mines og electricity (elec) upgrade koma líka til greina. Og ég er alltaf jafn hissa þegar fólk virðist halda að það vinni á því að byggja uber-turret farm í base-inu… Maður vinnur ekki á því, maður er bara lengur að tapa.


Mikilvægi Welder-sins:

Augljósasta mikilvægi weldersins er að það má laga byggingar með honum. En það eru tvö notagildi fyrir hann sem eru ekki eins augljós:

1) Að breyta mappinu: Marine getur notað welderinn til að breyta mappinu varanlega. Hann getur lokað ýmsum göngum og opnað ýmsar mikilvægar leiðir (allt sem hægt er að welda er merkt með gylltu logsuðu tákni). Dæmi: Í Hera þá er stór cargo hurð frá spawninu, og lítil hurð fyrir menn að labba í gegnum, en það er ekki hægt að komast út um hana. Það er hægt að fara lengri leið og koma að henn hinum megin. Þá getur maður weldað “weld svæðið” (þetta með gyllta logsuðu tákninu) hjá henni og Voila! Marines komast mun auðveldlegar úr base-inu og út í mappið. Annað dæmi myndi vera hættuleg “loftræstigöng” (vents) sem leiða inn í marine spawn. Oftast ef ekki alltaf er hægt að loka fyrir þetta á hinum enda gangnanna.

2) Að laga armor hjá teammates: Sumir vilja meina að það eigi bara að gera þetta við Heavy Armor (HA) en ég er algjörlega ósammála. Armor er gífurlega mikilvægt í NS. Ef það er búið að eyðileggja allan armorinn hjá þér en ert með 100 í health ertu mjög berskjaldaður. Það borgar sig þvílíkt að welda teammates sem eru búnir að missa armor og mikilvægið eykst með hverju armor upgrade. Þú getur séð hvað teammate er með mikið armor og health með því að horfa á hann. Ef þú færð welder, vertu viss um að skoða og welda armorinn hjá hverjum einasta teammate, hvort sem hann er heavy eða ekki (þó að HA hafi forgang því það er dýrara, og verra fyrir liðið að tapa því). Ef armorinn hjá þér er skemmdur, en gaurinn með þér á ekki welder, lánaðu honum þinn (“drop weapon” default takki “g” eða nota hægritakka menu) svo hann geti weldað þig.




Almennar ráðleggingar fyrir Marines:

1.) Gerðu það sem Commanderinn segir. Waypoints sem commanderinn gefur virðast oft ekki vera neitt af viti en í 90% tilvika er vit í þeim (slæmur comm gefur oftast ekki waypoints). Treystu commanum blint… það borgar sig. Ef comminn segir þér að fara í PG eða á waypoint *strax*…. ekki þá hlaða upp fullt ammo, klára að gera það sem þú varst að gera (nema það séu 5 sek eftir af því, annars getur það beðið), eða stoppa til að berjast við OCs (Offence Chambers, alien turrets) á leiðinni…. forðastu að tefjast eða deyja eins og þú getur til þess að komast á WP-inn (waypointinn).

2.) Nota PG: Ef þú sérð (á map) að þú getur stytt leiðina á WP með því að nota PG, gerðu það. Ef comminn segir að það sé PG nákvæmlega á WP-inum, þá muntu flytjast nákvæmlega á WP-inn. Þú gætir þurft að phase-a í gegnum nokkur önnur PG fyrst, PG flytja í hringrás eftir þeirri röð sem þau voru byggð (1 flytur til 2, 2 flytur til 3, 3 flytur til 1… Svona er það ef liðið á 3 PG)

3.) Mundu, næstum allt *er* res, og res vex ekki á trjám: Allt sem commanderinn byggir eða kaupir er res. Ef þú deyrð með HA/JP og/eða vopn þá er það res tapað. Ég er ekki að segja að þú eigir að rista á þér kviðinn fyrir að tapa res fyrir liðinu, vertu bara meðvitaður um hvað það kostar. Reyndu að lifa af og halda hópinn þegar þú ert “loaded” (með dýrt stuff á þér). Reyndu sömuleiðis að halda öðru fólki með dýrt stuff lifandi. Reyndu að hafa auga með byggingunum ykkar af og til (RT-um sérstaklega, það vita allir að það á að byggja þau en færri að það á að “halda” þeim til að græða) og welda þau ef þau eru skemmd. Sæktu welder ef þú þarft, segðu commanum hvað þú ætlar að gera með hann og hann er líklegri til að gefa þér hann… og ekki gleyma, halda armornum í góðu standi hjá fólki (þér líka) sem er með dýrt stuff.

4.) Hjálpaðu Commanum að hjálpa þér. Ef þig vantar hp (health pack), ekki öskra “HEALTH!!”. Biddu um það sem þig vantar með RMB (Right Mouse Button) menu-inum (smelltu á hægri músartakkann, færðu músina til niður í “Comms”, síðan til hægri í “Yells” og þá færðu valmöguleikana: “Need Health” og “Need Ammo”. Þannig sendirðu Commanum þessa litlu takka til að zooma á þig sem ég minntist á í “Commander” kaflanum.

5.) Hafið í huga að Commanderinn á ekki að gefa öllum health, eða ammo, alltaf. Ef það væri meinið gerði hann ekkert annað, og hefði heldur ekki efni á neinu öðru (health kostar 2 res pakkinn, ammo líka). Það á að sjálfsögðu að fá sér ókeypis ammo og health í armory, nema í neyðartilfellum. Íhugaðu hvort það borgar sig í hverju tilfelli að þú fáir med pack, frá sjónarmiði liðsins: Ert þú með dýrt stuff? Ert þú að verja eitthvað mikilvægt? Ert þú á hernaðarlega mikilvægum stað, eða langt frá base-inu?

Ef ekki þá ertu ekki mjög mikilvægur og mátt alveg deyja =P.

6.) “1 build 1 cover”: Það er setning sem commanderinn segir oft við 2 marines sem hann skipar að byggja eitthvað. Ef þið byggið báðir þá eru líkur á að þið verðið bitnir í bakið. Ekki treysta á að heyra í alien koma, þeir gætu verið með “Silence”.

7.) Það er miklu betra fyrir marines að ferðast um í hópum, en menn spawna ekki endilega allir í einu alltaf… mönnum hættir þess vegna til að vera í “lest” frekar en hóp ef þeir eru á leiðinni á sama stað en spawnuðu ekki allir í einu. Það sem þarf augljóslega að gerast þá er að fremstu menn stoppi, coveri svæðið og bíði eftir hinum. Voila! Þá er kominn hópur og þó að það eigi reyndar líka við um aliens að það sé betra að gera árás margir í einu þá á það SÉRSTAKLEGA við um marines að þeir eru miklu betri í hópum og það eru fjölmargar ástæður fyrir því ef maður hugsar út í það…




Healing base og MC Turbo heal:

Healing base er það kallað þegar Aliens byggja nokkra DCs (Defence Chambers) saman í klump til að menn geti náð sér í hratt heal þar. Healing bases eru oft varin af OCs (Offence Chambers) og/eða gerð ósýnileg með SC (sensory chamber) nálægt. Healing base eru sérstaklega nytsamleg á “heitum” svæðum eða þegar taka á óvina base út (attack-flee-heal-attack).

MC (Movement Chamber) Turbo/Super/Uber/Mega heal er það kallað þegar gorge stendur nálægt 1 movement chamber eða fleirum og healar án afláts. Þar sem MC endurnýjar orku hjá allt að þremur Aliens í kringum sig þá getur gorge staðið með movement chamber(s) fyrir aftan sig og healað næstum án þess að energy klárist. Eins og þið takið fljótt eftir þá hafa aliens ekkert ammo, bara energy, sem hlaðast upp, og þeir nota í abilities. Þetta er betra heal heldur en frá DC(s) auk þess sem maður er fljótari að byggja 1 MC heldur en marga DCs, en hefur þann galla að gorge þarf að vera viðstaddur. Oft er gott, þegar Onos eða margir aðrir þurfa heal fljótt, að byggja 1 MC, full heal-a alla og byggja síðan marga DCs.




Lerkinn er support class:

Lerkinn, fyrir utan að geta barist sæmilega og pirrað/drepið marines með spore cloud (stinkcloud, græna skýinu) þá er hann öflugur “stuðningsaðili” liðsfélaga sinna með hive 2 og hive 3 ability-unum:

Umbra: gula skýið sem stoppar Marine byssukúlur, og Primal Scream: öskrið sem hann gerir til að gera sig sjálfan og liðsfélagana nálægt sér MUN hraðari og öflugri.

Þessir abilities geta ákvarðað útkomur í orrustum og ætti ekki að vanmeta. Umbra sérstaklega, sem er til oftar (þarf bara 2 hive) og getur bjargað lífum og hjálpað teammate-unum þínum að valta yfir marines sem ekki eiga grenade launcher (sem Umbra hefur engin áhrif á).




Almennar ráðleggingar fyrir Aliens:

1.) Bjargið res towerum! “Resource Tower is under attack” hljóðskilaboðin og rauði punkturinn (með textanum “Resource Tower is under attack” undir) koma út af gildri ástæðu. Allt liðið tapar á því að missa res tower.

2.) Leitið ykkur healing hjá gorge-um/Þegar þið eruð gorge heal-ið fólk í kringum ykkur: Ef gorginn tekur ekki eftir ykkur þá er gott að gefa frá ykkur hljóð með RMB menu-inum eða narta/slá/stanga aðeins í hann til að vekja hann frá byggingarstarfinu. Þegar þú ert gorge, kíktu á armor/health hjá teammates sem þú sérð, þeir gætu þurft heal en ekki beðið um það.

3.) Gefið liðinu upplýsingar um hvað þið gerið: Aliens hafa engan commander og því verða Aliens að nota mappið og kjafta saman. Dæmi: Þú byggir healing base á vel földum en góðum stað í miðjunni á mappinu. Láttu alla vita af því, segðu hvað staðurinn heitir og/eða lýstu staðnum auðveldlega…. að þetta sé miðjan t.d. eða með afstöðu frá einhverjum stað sem allir þekkja. Eins og t.d. “ég byggi healing base og sens cover sunnan við double res” (mörg möpp hafa stað með 2 res nodes)

4.) Gefið liðinu upplýsingar um hvað óvinurinn gerir: Sömuleiðis skal láta vita um ferðir óvinarins (eins og þegar 3 marines eru á leið í holoroom, og gorge-inn er einn þar), og hvar óvinurinn er að byggja (svo þeir fái nú örugglega ekki að gera það í friði >Þ). Í stuttu máli framkvæmið recon (könnun á óvininum) og kjaftið saman þegar þið eruð í alien.

5.) Verjið players sem eru búnir að evolva í Fade eða Onos. Það er áfall fyrir liðið að missa þá (Fade kostar 50 res og Onos 75). Hikið ekki við að fórna ykkur fyrir þá ef þið eruð skulk eða gorge (gorge heal-ar þá meðan þeir sleppa, lerk myndi gera umbra)

6.) Ekki missa þig með web-inn. Web er snilldar ability en það er “kvóti” á honum, þ.e.a.s. hvað megar vera margir strengir af web í öllu borðinu. Ef þú klárar kvótann til að byggja eiffelturninn einhversstaðar þá geta hinir gorge-arnir ekki varið hive með web-num eða notað hann í neyðartilfellum á rines sem eru að skjóta á þá (fyrir þá sem ekki vita þá skýtur maður 2 staði með web “vopninu” og það kemur web strengur á milli þeirra).







===||NS-Íslensk orðabók.||===


Útskýringar á “NS máli” og skammstöfunum.
(sem ég kann að hafa úskýrt áður í greininni eða ekki)




Hjá/Um Marines:

*Comm: Commander.
*Console/CC/comm chair: Command Console-ið. ATH: í mappinu ns_eclipse getur CC líka þýtt Computer Core hive-ið.
*IP: Infantry Portal (“mine the IPs”)
*TF/Tfac: Turret Factory
*turr: Turret
*turret farm: TF og turrets (sérstaklega þegar það er MIKIÐ af turrets)
*PG: Phase Gate
*PHASE!!!: Use a Phase Gate now! (þegar þetta er sagt er mikil þörf á hjálp einhversstaðar þar sem PG er, og commanderinn vill að fólk drífi sig í PG, STRAX)
*Rine: Marine
*humping the armory: Að eyða tíma í að hlaða upp fullt ammo, þegar þú þarft þess ekki og ættir að vera að flýta þér á waypointinn eða í PG-ið.
*Siege: Anti-Base aðgerðin sem fjallað var um í “Siege” kaflanum fyrir ofan.
*Obs: Observatory.
*Proto(lab): Prototype Lab
*MT/Motion: Motion Tracking
*LMG: Light Machine Gun (default rine vopnið)
*Shotty: Shotgun.
*HMG: Heavy Machine Gun.
*GL/Nade launcher: Grenade Launcher
*JP: Jetpack
*HA: Heavy Armor, eða gaur í HA.
*Heavy: Gaur í HA, oft með heavy byssu með. (stundum kallaður “RoboCop”)
*Heavy/HA train eða Heavy/HA convoy: “Lest” af HA gaurum sem ferðast um saman og weldar hvorn annan.
*WELD!!!: WELDAÐU MIG!! “Skjóttu” mig með welder “vopninu” til að laga armorinn minn!
*Gaur (oft í HA) sem hoppar á móti þér (með welder í hendinni ef hann á hann) blikkandi vasaljósinu: Weldaðu mig!
*Rambo: Að fara út einn og reyna að sigra aliens sjálfur (gera áras á hive einn t.d.), einhver sem rambo-ar
*Med pack/med/HP: Health Pack
*Beacon: (as in: “BEACON!!!”) Að teleporta alla marines í neyðartilfelli á upprunalega marine spawn. Oft er gargað “BACON”, “BEIKON” eða “EGG OG BEIKON” í staðinn í djóki :D




Hjá/Um Aliens:

*Hive: Aðal byggingin hjá Aliens. Þar sem aliens spawna. Oft líka notað um STAÐINA sem hægt er að byggja hive á.
*DC: Defence Chamber
*MC: Movement Chamber
*Sens (chamber): Sensory Chamber
*Sens Cover(age): Cloak-ið sem sens chamber gefur. (“need sens coverage in processing”)
*OC: Offence Chamber, alien turret-inn.
*Cara: Carapace upgrade-ið
*Regen: Regeneration upgrade-ið
*Turbo Heal: Gorge heal með hjálp MC
*Gorging/Lerking/Fading/Onosing: Breyti mér í Gorge/Lerk/Fade/Onos.
*Fatty: Gorge
*Alien sem bítur/slær/stangar í þig þegar þú ert gorge: WAKE UP AND HEAL ME!!
*WoL: Wall of Lame. Veggur af OCs og DCs til að loka einhverri leið.
*Stinkcloud: Spore Cloud




Almennt/Bæði lið:

*Res: Resources, auðlindir, peningur
*RP: Resource Point, eining af res.
*Res node, res nozzle: “Stúturinn” sem hvíta gufan (“res”) kemur upp úr. (kallað í djóki “nipple” (“Comm, we need to grab some more nipples!”)) :D
*Res Tower/RT: Resource Tower
*vent: loftræstigöng/þröng göng.
*ffs: For Fucks Sake (omg er bara eitthvað sem gelgjur segja :P)
*RR: Ready Room, herbergið sem allir byrja í og velja sér lið. Maður ýtir á f4 til að fara þangað aftur.
*gg: good game
*gl: good luck
*hf: have fun
*kmr: kemur
*afaik: as far as I know
*omw: on my way
*newbie: einhver nýr í leiknum
*n00b: Neikvæðara orð um einhvern nýjan í leiknum. Stundum notað um nýtt fólk sem hlustar ekki, les sér ekki til, eða heldur að það viti allt.
*afk: away from keyboard
*brb: be right back




Áttavita-kortatalsmátinn

Í leikjum með miklu teamplay og overhead kortum sem allir geta séð, þróast oft svona talsmáti. Það gerðist í NS eftir að “c mappið” kom í 2.0. Fyrir þá sem ekki vita þá eru áttirnar á kortum svona:

Norður = Upp, Suður = Niður, Vestur = Vinstri, Austur =Hægri.

Eða í myndrænu formi, svona:

———————————————————————-

norðvestur NORÐUR norðaustur
||
||
VESTUR ===== ===== AUSTUR
||
||
suðvestur SUÐUR suðaustur

———————————————————————–

Þannið að ef einhver segir: “rines byggja siege base norðan við double” þá á hann við “fyrir ofan” double res-ið, á kortinu.

Og ef einhver segir: “ég byggi suðaustur hive”, þá á hann við hive-ið í neðra hægra horninu. Má svo sem alveg líka segja “ofan hægra megin við þennan eða hinn stað” en hitt er bara miklu nettara :P.





Og ljúkum við hér Hinni Íslensku NS Hjálp. :P

Skemmtið ykkur vel í NS.


Höfundur: Reynir (“OBhave”) Örn Reynisson