Jæja, þá er þessi helgi á enda og nokkrir farnir heim með fínar músamottur.
Quake3 keppnin kom mjög á óvart, en þar voru 2 af 4 efstu mönnum CS spilarar. Þeir eru [-=N6=-]GunDo og [-IRA-]Vision en honum tókst að sigra þennan margþrunginn úrslitaleik. Það var mikil barátta milli [-IRA-]Vision, [-=N6=-]GunDo, PhD-Active og ice|Cabal en Vision tók endasprettinn með sóma.
Í CS 2vs2 voru DCAP menn mjög sterkir, en þess má geta að DCAP-A (DeathHunter og Gambler) lentu á móti DCAP-B (Preacher og Ravenkettle) í fyrstu umferð og endaði það með að DCAP-B fóru niður í losers bracket. Þeir mættu síðan aftur í úrslitaleiknum í de_inferno og unnu DCAP-A menn aftur með glæsibrag. Þetta var mjög spennandi og skemmtilegur leikur. En efstu sætin voru eftirhljóðandi:
1. DCAP-A (DeathHunter + Gambler)
2. DCAP-B (Preacher + Ravenkettle)
3. W2K ([-IRA-]Vision + PhD-Active)
4. N6-D (GunDo + Helgi_Dee)

Ég vil þakka öllum sem komu á þetta LAN og vona að ég sé ykkur aftur á næsta IR LANi.


dArkpAcT