Jæja góðir hálsar.

Núna er nóg komið af hinni geigvænlegu bið. Netdeild er að fara í loftið!

Ætla bara að hafa þetta stutt og laggott um hvernig þið komist inn í deildina sjálfa.

Þið takið niður öll steam_id hjá þeim sem ætla að spila fyrir clanið ykkar í deildinni og sendið
á e-mailið netdeild@skjalfti.is. Það sem á að fylgja er nick, nafn og steam_id hjá öllum spilurum
sem ætla að taka þátt og þið tilgreinið hver verður leaderinn fyrir clanið.


Allar breytingar skulu svo sendast á netdeild@skjalfti.is eða tala við admina á #netdeild .

Skráning hefst í dag og stendur fram til næsta Sunnudags.

Nánari upplýsingar eru á #netdeild á IRCNet sem og kemur kubbur / grein um deildin hingað á huga :)