Íslenski ladderinn Hæ,
það hefur verið mikið talað við mig yfir því að fólk viti ekki hvað ladder er og sagðist aldrei hafa séð neina auglýsingu um þetta what so ever, þannig þeir sem koma á huga daglega eða sjaldnar og lesa nánast bara nýju greinarnar, þetta er fyrir ykkur:)

\ Hvað er ladder? /
Ladder er EKKI mót, þetta er bara stigatafla þar sem lið á laddernum keppa við hvort annað til að komast hærra á ladderinn
Liðin sem eru skráð eru hér: http://www.lanparty.is/haste/ladder/ladder.php?ladderid =4

\ Hvernig virkar ladderinn? /
Þú skráir þig fyrst, ferð á http://www.lanparty.is/haste/ladder/ og þar vinstra megin veluru “New Player Signup” , eftir það fyllir þú út í efstu 5 reitina, ferð svo neðst og hakar við bæði þar, og klikkar á “Create my account”, eftir það skoðaru inbox á emailnum sem þú gafst upp og opnar póstinn sem þú fékkst frá zpluggy@hotmail.com , subject sem sagt “IL Validation Code”.
Opnar það og klikkar á urlinn þar, ferð svo í “Validate me” og þá ertu skráður, eftir það loggaru þig inn með þitt player ID ( uppi hægra megin á http://www.lanparty.is/haste/ladder/ ) , svo ferðu í “Join A Ladder” , velur Counter-strike teams ladderinn og skráir clanið.
Eftir það færðu alla í þínu clani til að skrá sig, þeir segja þér þeirra Player ID og þú skráir þá í clanið með því að fara í “Manager” og invite player, þar skrifaru Player ID hjá þeim sem þú ert að adda í roosterinn og þá er það ready!
Þú getur líkað challenge-að önnur clön ;)

\ Hvenær byrjar ladderinn? /
Næstkomandi föstudag :)

\ Eru einhverjar ákveðnar dagsetningar? /
Nei, þetta er ekki mót, þú bara finnur scrimm við annað lið á laddernum og scrimmar, svo reportar tap liðið með því að skrá sig inn og fara í “Report loss” og sigur liðið staðfestir, með því að fara í “Confirm a win” (durr..)
Þú getur fundið scrimm á #ladder.is eða bara örðum rásum ( #findscrim.is ) og tekið fram að þú sért að leita að ladder scrimmi
Þú ert ekki skuldbundinn til að taka ladder scrimm 1x í viku eða e-ð, þótt liðið þitt skrái sig geturu sleppt því að scrimma í laddernum at all
Svo ef þetta gengur vel, höfðum við hugsað okkur að fá top-10 liðin á laddernum í eigin ladder, eða einhverjar svona hugmyndir

\ Verður að skrá sig fyrir föstudaginn? /
Neib, getur skráð þig hvenær sem er

\ Vandamál með skráningu? /
Komdu á #ladder.is og talaðu við mig (Raider) eða zpluggy :)

Takk fyrir mig og ég vona að sem flestir skrái sig.
Kveðja, Viktor / Raider.