Sælt veri fólkið.

Það vill svo til að ESL ENC er að fara að byrja og hefur maður að nafni “Ray” eða devilray tekið við starfi sem Manager yfir ísl landsliðinu án vitundar flest allra.

Hann hefur valið 6 manna lið sem er svosem ágætishópur en þeir eru
Drake: Some0ne,blibb og zombie
ice.cs: entex,cyrus og knifah sem ég hélt að hefði lagt cs að mestu á hilluna.

Það sem ég var að spá er að láta íslensku drengina sjá um þetta og er MrRed alveg game að vera manager ( for the record þá spilar manager ekkert reddar bara server og talar við hitt liðið um tíma og þessháttar ) ég veit að fullt af liði er ósátt að hafa Ray sem fulltrúa íslensku þjóðarinnar sérstaklega þarsem hann er ekki af íslensku bergi brotinn.

Þetta er auðvitað hugmynd ef einhver annar íslenskur limur hefur áhuga að taka þetta að sér þá er þetta auðvitað bara gott og blessað og ættum við að ræða það frekar. Ég myndi halda að Arnar aka MrRed ætti að geta verið ágætis fulltrúi fyrir hönd okkar.

Þarsem Ray valdi þetta lið væri allt í lagi ef ice myndi kannski vilja breyta þessum 3 gaurum sem þeir sendu en það er auðvitað undir þeim komið, held að við í Drake séum bara sáttir með hópinn sem er þarna og kannski fá smá innskot frá diG ef þeir vilja senda 1-2 menn inn í hópinn, ættum kannski að talast betur saman um það á irc eða fara og fá okkur kaffi og kleinur og spá í þessu saman eins og menn bara :)

Þannig svona fyrir long version í stutt þá kom gamli erlendi manager murk, valdi 6 gaura sjálfur án þess að tala við kóng né prest sem að hans mati voru bestir og tók yfir liðinu án þess að ice né Drake fengu að velja liðið sitt sjálfir né neitt annað lið kæmist að.