Að gefnu tilefni viljum við [.Oldies.] menn koma á framfæri tilkynningu þessari.

Í framhaldi af grein [.IFF.]Alien8 “Afturför Íslensks CS samfélags í hnotskurn” og korksins frá GilliBoy “Klan fyrir gamlingja?” langar okkur [.Oldies.] mönnum að benda eldri og “vitrari” spilurum á að það er til klan fyrir ellismelli sem eru komnir á efri ár ævinnar.

En hvað er [.Oldies.]?

[.Oldies.] er stranglega “non-pro” klan. Skemmtun er skilyrði og kjaftbrúk,stælar og r-con abuse (ekki að við höfum einhver) ásamt flestum öðrum almennum leiðindum eru afþakkaðar.

[.Oldies.] klanið hefur á stefnuskrá sinni þetta venjulega sem önnur klön hafa,eins og t.d heimsyfirráð,ríkidæmi og vellystingar.


[.Oldies.] er gamalmenna-klan
[.Oldies.] er pabba-klan
[.Oldies.] er afa-klan
[.Oldies.] er bjórríkt-klan
[.Oldies.] er leti-klan
[.Oldies.] er reglulaust-klan.

[.Oldies.] hefur óbeit á omg n00b,stfu,haxari,mammaín ofl.

Síðan að við hófum þessa “uppreisn” okkar eldri borgara CS samfélagsins hefur það komið okkur verulega á óvart hversu margir CS spilarar eru komnir á aldur,og þeir eru eins og við margir hverjir orðnir þreyttir á þessu áreiti sem oft fylgir því að vera í CS klani hvað þá að leiða eitt slíkt.(trúið mér ég hef reynslu)

Ekki að það sé ekki gaman líka en kannski eru aðrir þarna úti sem er svipað komið fyrir og okkur. Eldri heiðursmenn sem vilja gjarnan njóta þess að eyða ævikvöldinu á de_aztec eða cs_italy með mús í annari og bjór í hinni.

Ef þú ert kominn með skeggrót,hár á vininn og heila hugsun í hausinn og hefur áhuga á að taka þátt í göngugrinda-rushi dauðans og ert að leita að letilegu skuldbindingalausu klanspilaríi sendu mér þá msg hér á huga eða sendu mail á gislisun@hotmail.com


[.Oldies.]Willkill4food
[.Ol dies.]Knievel
[.Oldies.]Steel
[.Oldies.]Judas Priest
[.Oldies.]Mr.Black
[.Oldies.]Chef-Smari

[.O ldies.]We are old & grumpy and on medication!