Jæja þá er komið að því að þriðji Titturinn fari í gang.


Það mega öll klön sækja um að taka þátt.
Ég ræð því hvaða klön ég tek inn í keppnina. Það verður unnið út frá undangengnum keppnum, almennu orðspori og samsetningu þeirra klana sem sækja um.

Hið klassíska vandamál með servera verður leyst:
1. Adminar á Simnet scrim serverum veita okkur forgang eitt kvöld í viku í einn og hálfan klukkutíma á sína servera. Þetta er call for help :) Ég vona að einhver hafi samband við mig eða segi mér við hverja ég á að tala um þetta mál. Ef það er ekki hægt þá …

2. Liðin fá einn sólarhring til að ljúka leikjum (eitthvað í þá áttina.)

Keppnisreglurnar verða svipaðar og síðast nema að það verða svipaðir exploit standardar og tíðkast í t.d. cal. Það kemur nákvæmar síðar upp.

Ef einhverjum líst vel á þá er það þetta sem þið þurfið að gera:
Þetta ferli verður þannig að þið hafið núna fram á miðvikudagsmorgunn til að sækja um.
Ég verð búinn að senda til baka svar á föstudaginn. Og þá verðið þið sem fáið inngöngu að work with me :)
Þá sendið þið mér póst með 5 möppum sem ykkur langar mest til að spila.
Og nöfnum, nickum og steamidum fyrir í MESTA lagi 10 leikmenn.
Sem verða þá ykkar löglegu leikmenn í þessu móti.
Þennan póst verðið þið að senda fyrir miðnætti á næsta sunnudegi.

Svo sullum við deildinni í gang í vikunni þar á eftir.


Fyrst um sinn er ég sá eini sem þið hafið samband við (á undirbúningsstiginu) það koma fleiri sultur að þessu þegar lengra líður á.

Kveðja *SpEaRs*Virgin
sp3ars@hotmail.com fyrir umsóknir
bardib@hi.is ef þið eruð með eitthvað “viðkvæmara”
SpEaRs-Vi á #clanspears
*SpEaRs*Virgin