Ný Vefverslun fyrir Leikjaspilara ATH! Ný vefslóð að verslun! http://verslun.quake.is

Sælir,

Í dag opnar glæný vefverslun sem er eingöngu ætluð fyrir íslenska leikjaspilara. Á boðstólnum verða allar þær vörur sem íslenskir leikjafíklar hafa áhuga á.

Til að byrja með verða dktpad, fUnc.net 1030 og Mouseskatez til sölu en ef áhugi er fyrir hendi þá verður Steelpad 3S og 4S ásamt Icemat bætt við hópinn.

Einnig er verið að bíða eftir sendingu af FatPad.

Verið er að skoða ýmsar útgáfur af Mouse Bungee, nánar auglýst síðar.

Í tilefni af opnuninni verðum við með leik í gangi.
5 heppnir viðskiptavinir fá 3 fría tíma í Bunker, Lan Setur í Síðumúla 37, og því um að gera og drífa sig að panta!

Heimasíða verslunarinnar er á: http://verslun.quake.is
Heimasíða Bunker Lan-seturs er á: http://www.bunker.is

ATH: Fyrsta vörusending kemur á fimmtudag, tekið er við pöntunum strax en greiðslu þegar vörur eru afhentar. Allar pantanir eru bindandi.

Með von um góðar viðtökur,
Daníel R. / Slay