Sælir fellow CS spilarar, stelpur sem strákar.

Nú fékk ég alveg nóg, var að spila á eitthverjum Simnet server.
Sé þar þennan strák sem var að spyrja “Má ég joina eitthvað clan???” Fyrsta svarið sem ég rek augun í er “Haltu kjafti núbbin þinn, þú sökkar meira en amma mín í cs, farðu og deyðu útí horni”. Svo koma fleiri svona fleim, eins og plain and simple “ NEI! ”.
Svo segi bara við hann, “heyrðu ”nick“, prufaðu að fara og leita á ircinu, mikið betra að leita þar og að spyrja á public er talið frekar i noobiekantinum :), allaveganna gl(Good luck) með að finna þér clan.” Svo fer ég.. og skrifa þessa grein.

Kannski eru fleiri en ég orðnir þreyttir á þessu en sumir ekki.
Allaveganna var þetta það sem fór yfir strikið hjá mér. Ætla því að reyna að koma af stað þessu átaki. +

Ég bið alla sem lesa þessa grein, að taka sig á. Ef þið farið á public server, og sjáið einhvern nýliða þar sem skilur ekkert, reynið þá að hjálpa honum með því að útskýra þetta fyrir honum! ekki koma með eitthvað skítakast eins og flestir gera, Allir voru einu sinni noobar ekki satt? Endilega skrifið það hérna ef þið ákveðið að taka þátt í þessu með nicki og alles ;)

L8r!
(\_/)