Spádómarnir Nú er rétt rúm vika í Skjálfta 2|03 og engir spádómar farnir að sjást! Ég ætla hér með að taka frumkvæðið og senda inn mína spá fyrir Skjálftann og vona að vel verði tekið í hana og ég fái að sjá skoðanir fólks á málunum því að VÁ! mér leiðist í vinnunni og ég hef svo sannarlega þörf fyrir að hafa eitthvað til að lesa :) Og já… ég held að ég sé fyrsta stelpan til að senda inn spádóma í greinarformi hérna (correct me if I’m wrong).

1. sæti:
MurK.CS
Big surprise, eyh? Allavegana held ég því fram að MurK taki Skjálftann. Þeir hafa team-play’ið, þeir hafa reynsluna og þeir hafa metnaðinn. Allt hlutir sem að þú þarft ef að þú ætlar þér að vinna.

2. sæti:
diG
Þessir strákar eiga að mínu mati eftir að standa mest í kokinu á MurK (take that any ways you want boys). Þeir sýndu það á seinasta Skjálfta að þeir eru að vinna í því að minnka muninn á milli MurK og hinna en þó að þeir eru góðir eru þeir ekki betri en MurK.

3. sæti:
Drake/ice.CS
Ég er ekki alveg viss hvort að Drake eða ice.CS taki 3ja sætið en ég er nokkuð viss um að annaðhvort liðanna gerir það.

Well… that’s about it…
Endilega svarið, fleimið, bitchist eins og þið mögulega getið, alltaf gaman að sjá skoðanir fólks á hlutunum :)

Kveðja
[.evil.]venuss
Skiptir það máli?