Já,

Við MurK menn höfum núna ákveðið að fara á cpl summer sem hefst þann 30 júlí nú í sumar. Spilarar fyrir MurK verða Kristjan, Gunnar, Ingolfur, Johannes, Johann eða Krissi, Gambler, blibb, knifah, Zombie.

Við stefnum að því að standa okkur eins og vel og við getum og vonum að klakinn geti verið stolltur af okkur. Við höfum sigrað lang flest counter-strike mót á Íslandi og þar af t.d. undanfarna 3 skjálfta.

Við erum eins og er að leita að einhverskonar styrktaraðilum sem geta styrkt okkur í þessum málefni. Ef þú sem ert að lesa þetta hefur einhvern áhuga á að styrkja okkur í þessu endilega sendu email á krissif@hotmail.com

Verðlaunin á þessu móti eru

1. $70,000
2. $40,000
3. $25,000
4. $15,000
5. $10,000

og vonum við að við getum krækt okkur í nokkra seðla á förinni úti :E.

Við viljum þakka Bunker fyrir að styrkja okkur og vona að fólk taki þeim vel þegar buisnessinn hjá þeim fer að blómstra.

MurK-Kristjan