Sælir allir saman.

Eftir að ég pantaði Mouse Skatez fékk ég alveg fyrirspurnir í tonna tali hvort eithvað væri afgangs sem fólk gæti keypt eða hvort ég myndi panta aftur meira.

Nú er staðan sú að ég er að pæla að kaupa inn 40 pakka og borga þá sjálfur og selja síðan hérna.

Pakkinn myndi seljast á 1180 krónur, tollur og vaskur innifalinn.

Ég mun gera þetta eingöngu ef ég fæ nógu mikinn áhuga hérna.

Þetta er ekki pöntun hjá ykkur, en ég vill vita hverjir hafa áhuga á að kaupa, þá meina ég ALVÖRU áhuga, og hversu marga pakka þið hefðuð hug á að kaupa.

Segið mér þetta svo ég viti hvort það sé einhver markaður fyrir þessu, annars læt ég ekki verða af þessu.

Ég mun ekki láta viðskiptin ganga fyrir í gegn um Huga eins og síðast, heldur mun þetta vera framkv. símleiðis.

Þegar ég verð búinn að fá pakkana til landsins mun ég tilkynna það og fólk verður að hafa samb. í símann minn til að panta og fá almennar uppl.

Þeir sem hafa áhuga fyrir þessu, endilega segið það hérna og hversu marga pakka, en ekki segjast vilja þetta NEMA EIGA FYRIR ÞVÍ OG ÆTLA SÉR ÞAÐ.

Ef ég fæ 100 manns sem segjast vilja taka þátt og ég panta og engin kaupir, þá lofa ég að ég mun aldrei gera neitt svona fyrir CS menninguna aftur.

Og hver veit, ef þetta gengur vel reyni ég kannski að redda fleiri hlutum eins og Func, Icemats, og fleiri hlutum sem tengjast leikjum og leikjahlutum á mun ódýrara verði en gengur og gerist út í búð með magnkaupum á þessum einstöku hlutum.

<b>Látið mig vita - ekkert bull.
Bara þið sem viljið og munið kaupa, pósta.</b>

Preacher.