GUÐ MINN ALMÁTTUGUR!!!

Ég vinn hérna við Ingólfstorg og heyri því alltaf Tal-tónleikana inn um gluggann minn. Rímnamín var hérna fyrir helgi, mér fannst allir þar skila sínu… Í dag hinsvegar eru Afkvæmi guðanna eða eitthvað álíka á sviðinu. Þessir gaurar eru svo rosalega slæmir að þetta jaðar við að vera broslegt!

Ég vona að þessir stráklingar hætti að reyna að framleiða “tónlist” og snúi sér að öðru svo ég þurfi ALDREI aftur að heyra í þeim!