Hversu margir hérna
rísa upp gegn mótlæti og hversu margir horfa á
hversu margir loka augunum og hversu margir sjá
flestir snúa baki við þeim sem vilja láta hjálpa sér
en hver mun veita hjálparhönd þegar þú vilt láta hjálpa þér


Alltof mörgum vantar hjálparhönd en flestum fallast hendur
flestir eiga of fáa vini en of marga erkifjendur
þú veist ei hvar þú stendur, hvort þú sefur eða vakir
fyrr en vinir þínir svíkja þig og stinga þig í bakið
þinn besti vinur hefur aldrei sýnt þér hver hann er
þegar vandast málin sérðu að hann hjálpar bara sjálfum sér
hver sem er og sama hversu vel þú þykist þekkja hann
hefur hann í huga sínum falinn fokking svikarann!
sem nýtir sér þín leyndarmál og man eftir þínum vandræðum
svo fylgstu vel með óvinum og enn betur með vinunum
…þú getur aldrei vitað hvað þeir eru að hugsa um
hver er júdas, hver er það sem svíkur þig á endanum
á móti silfurpeningum er vinátta einskis virði
peningar kaupa hugarró og létta þungar birgðir
, svikarar sem aðrir geta lent í mistökum
og sitja einir eftir vinalausir, enginn hjálpar svikurum


Hversu margir hérna rísa upp gegn mótlæti
og hversu margir horfa á
hversu margir loka augunum og hversu margir sjá
flestir snúa baki við þeim sem vilja láta hjálpa sér
en hver mun veita hjálparhönd þegar þú vilt láta hjálpa þér

hverjir rísa upp gegn mótlæti og hversu margir horfa á
hversu margir loka augunum og hversu margir sjá
flestir snúa baki við þeim sem vilja láta hjálpa sér
en hver mun veita hjálparhönd þegar þú vilt láta hjálpa þér


Lygar hafa orsakað of margar styrjaldir
bakvið tjöldin læðast, strax þeir eru byrjaðir
þeir safna saman herskara og þeir vilja þig
viljandi þeir fórna öðrum milljarði / í sitthvort lið
og verja sig gegn ásökunum þegar snúast borðin
uppfull af lygi og uppspuna þeir mála yfir orðin
í valdabaráttu þeir hugsa um eigin skinn og aðeins það
sem hjálpar þeim að færa sig frá þessum stað á næsta stað
eyðilegging fylgir svikum, segið sannleikann
fjarlægið burt svikarann og lýsið burtu skuggann hans
dragið hann í dagsljósið og bindið enda á svikin
bindið hendur svo þeir slái ekki í augu ykkar ryki
fyrir vikið / þeir forðast þig og hugsa sig næst tvisvar um
..áður en þeir ljúga að þér og þínum vinum
svikara sem ættu að vita betur….
svikarar sem ættu að vita betur en að svíkja mig!

Hversu margir hérna rísa upp gegn mótlæti
og hversu margir horfa á
hversu margir loka augunum og hversu margir sjá
flestir snúa baki við þeim sem vilja láta hjálpa sér
en hver mun veita hjálparhönd þegar þú vilt láta hjálpa þér

hverjir rísa upp gegn mótlæti og hversu margir horfa á
hversu margir loka augunum og hversu margir sjá
flestir snúa baki við þeim sem vilja láta hjálpa sér
en hver mun veita hjálparhönd þegar þú vilt láta hjálpa þér

.Hugleikur.
______________________________________

Við erum að vinna í þessu núna, það fer eitthvað af þessu að koma út vonandi bráðum…