Budweiser, Gaukurinn og Kronik(Radio X) kynna The Demigodz á Gauknum fimmtudagskvöldið 26 sep.
The Demigodz er ein ferskasta hip hop hljómsveitin í dag, en þeir gáfu nýlega út sýna fyrstu plötu sem ber nafnið “The Godz must be Crazy” og er hún að margra mati ein skemmtilegasta hiphop plata þessa árs. Þeir félagar koma hingað alla leið frá New York og ætla að gera allt vitlaust á Gauknum ásamt Dj Fingaprint sem mun vera þeim innan handar. Upphitun er í höndum Bæjarins Bestu, MC Steinbít(sem á vinsælasta lagið á Muzik.is þessa dagana) og Dj Nino.
Verð er aðeins 950 kr og 18ára aldurstakmark.
Brjáluð hip hop veisla á Gauknum fimmtud 26 sep sem enginn má missa af.

The Demigodz munu einnig koma fram í hiphop þættinum Kronik föstud 27 sep frá 8-10 á Radio X.