Morðingi Lost Boyz meðlimsins Raymond “Freaky Tah” Rogers játaði gjörðir sínar á mánudaginn. Kelvin Jones sem skaut Freaky Tah árið 1999 í Queens getur minnst fengið 15 ár, til lífstíðar fangelsi. Vitorðsmaður hans Raheem Fletcher sem keyrði hann til og frá staðarins situr nú inni með 7 ára dóm fyrir morð á manninum sem átti bílinn. Svo ætli þetta sé ekki í fyrsta skipti sem þeir ná manni sem drepur rappara…