Hver man ekki eftir For Ya Mind labelinu íslenska sem gaf út “Central Magnetizm” með Subta og For Ya Mind vol.1, en eitt lagið á For Ya Mind vol.1 náði einmitt mikilli spilum á FM 957. Nú spyr ég, hvað varð um For Ya Mind og af hverju er ekki komið vol.2??? Og í leiðinni spyr ég um Mr.Bix, sem prodúsaði Subta diskinn, hvar er hann? Átti hann ekki að prodúsa lag með Chino Xl, og verður þetta lag á nýja disknum hans Chino??? Vonandi hefur einhver svörin. Og einnig má koma með svar við því hvort NodYaHead krewið víðfræga er starfandi?