Gleymt lykilorð
Nýskráning
Hátíðir

Hátíðir

3.728 eru með Hátíðir sem áhugamál
13.878 stig
354 greinar
1.018 þræðir
88 tilkynningar
757 myndir
675 kannanir
11.554 álit
Meira

Ofurhugar

Karat Karat 964 stig
php php 386 stig
simaskra simaskra 372 stig
harpajul harpajul 298 stig
JoiMjoi JoiMjoi 278 stig
Grimzzi5 Grimzzi5 258 stig
hulda hulda 248 stig

Stjórnendur

Stekkjastaur kom 12. desember.





Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
-þá varð þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
-það gekk nú ekki vel.

(Jólasveinavísa / Jóhannes úr Kötlum)

Giljagaur kom 13. desember.





Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
- Hann skreið ofan úr gili
og skauzt í fjósið inn.

Hann faldi sig í básunum
og froðunni stal,
meðan fjósakonan átti
við fjósamanninn tal.

(Jólasveinavísa / Jóhannes úr Kötlum)


Stúfur kom 14. desember.





Stúfur hét sá þriðji
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar

(Jólasveinavísa / Jóhannes úr Kötlum)


Þvörusleikir kom 15. desember.





Sá fjórði, Þvörusleikir,
var fjarskalega mjór.
Og ósköp varð hann glaður,
þegar eldabuskan fór.

Þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip,
og hélt með báðum höndum,
því hún var stundum sleip.

(Jólasveinavísa / Jóhannes úr Kötlum)


Pottasleikir kom 16. desember.





Sá fimmti, Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
- Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti' ann sér að pottinu
og fékk sér góðan verð.

(Jólasveinavísa / Jóhannes úr Kötlum)


Askasleikir kom 17. desember.





Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.

Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund

(Jólasveinavísa / Jóhannes úr Kötlum)


Hurðaskellir kom 18. desember.





Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.

Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.

(Jólasveinavísa / Jóhannes úr Kötlum)


Skyrgámur kom 19. desember.





Skyrjarmur, sá áttundi,
var skelfilegt naut.
Hann hlemminn o´n af sánum
með hnefanum braut.

Svo hámaði hann í sig
og yfir matnum gein,
unz stóð hann á blístri
og stundi og hrein.

(Jólasveinavísa / Jóhannes úr Kötlum)


Bjúgnakrækir kemur í nótt
20. desember.





Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.

(Jólasveinavísa / Jóhannes úr Kötlum)


Gluggagægir kom 21. desember.





Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.

(Jólasveinavísa / Jóhannes úr Kötlum)


Gáttaþefur kom 22. desember.





Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.

Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.

(Jólasveinavísa / Jóhannes úr Kötlum)


Ketkrókur kom 23. desember.





Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.

(Jólasveinavísa / Jóhannes úr Kötlum)


Kertasníkir kom 24. desember.





Þrettándi var Kertasníkir,
- þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin
sem brostu, glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.

(Jólasveinavísa / Jóhannes úr Kötlum)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok