Nú eru jólin að nálgast =) og í fyrsta skipti í langan tíma hlakkar ég gegt(geðveikt) til ég er alveg að springa. Jólatréð, jólaseríur, snjór, jólasveinar, jólalögin, jólaöl, gleði hamingja og allur pakkinn.
En þá eru það vandamálin…… Ég er hræðileg pakka manneskja ég veit ekkert hvað ég á að gefa kærastanum mínum. Ég hef aldrei átt kærasta áður og þess vegna er ég alveg í klemmu. Mig langar svo að gefa honum eitthvað sem hann verður alveg þvílíkt ánægður með en hef ekki clue hvað það á að vera. Langar svo að hafa það eitthvað sem segir mér þykir vænt um þig en samt ekki eitthvað væmið… Hvað gefur maður strák sem er fótboltagúru, íþróttagaur, hefur gaman af gríni…… Fótbolti??? neeeei finnst þa ekki passa…. hann vill ekki bækur!!! Ég er stödd á eyðieyju og hef engann uppblásinn björgunarbát……..

Takk Bumbulina