Ég er með undir höndum einn miða á leikinn Ísland-Svíþjóð í Laugardalshöll laugardaginn 17. júní. Miðinn er stúku, í 14. röð og sæti 19.
Hér getið þið séð fyrikomulagið í stúkunni: https://midi.is/SalesWindow/EventInfo.aspx?EventId=4442&EId=3185&midi=1 Smellið á myndina til þess að stækka.

Hægt verður að bjóða í miðann frá deginum í dag, 13. júní til kl. 20 á föstudag, 16. júní. Uppboðið hefst á 2000 kr, lágmarkshækkun hverju sinni er 100 kr, þ.e.a.s. 2100, 2200 o.s.frv. Hæstbjóðandi fær af sjálfsögðu miðann. Öll boð í miðann skulu fara fram hér að neðan.

Eins og allir vita verður þetta hörkuspennandi leikur sem enginn má láta fram hjá sér fara!

Hér að neðan skulu aðeins fara fram boð í miðann en ekki persónulegar skoðanir á leiknum eða einhverju öðru. Vinsamlegast virðið þessa ósk mína.
Athugið einnig að svara mér en ekki einhverjum öðrum með tilboð í miðann.

Gangi ykkur vel!