ÍBV vann Hauka í fyrsta leik liðanna í úrslitum Esso-deildar kvenna. Leikurinn fór 29-23 fyrir ÍBV en í hálfleik var 13-13. Í síðari hálfleik voru ÍBV stúlkur ákveðnari og harkalegri en leikurinn var mjög mikil barátta í lokin í seinni hálfleik.
Markahæstar hjá ÍBV voru þessar:
Alla Gokorian 8 mörk
Anna Yakova 8 mörk
Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 4 mörk
Ana Ma Fernandez-Perez 3 mörk
Sylvia Strass 3 mörk

Markahæstar hjá Haukum voru þessar:
Hanna Stefánsdóttir 6 mörk
Nína K. Björnsdóttir 6 mörk
Inga Fríða Tryggvadóttir 4 mörk
Harpa Melsted 3 mörk
Sonja Jónsdóttir 2 mörk

Vigdís Sigurðardóttir, markvörður ÍBV, varði 8 skot en Lukrecija Bokan, markvörður Hauka, varði 10 skot.
Einvígið stendur þá 1-0 fyrir ÍBV.

Kveðja kristinn18