Stelpurnar unnu góðan baráttusigur á GróttuKR á Ásvöllum á laugardaginn, lokatölurnar voru 26-23. Leikurinn var jafn í upphafi, 1-1, 2-2, 3-3 en þá kom slakur kafli hjá Haukum og komust gestirnir í 4-7. Haukar náðu síðan að jafna 8-8 og var jafnt á næstu mínútum 9-9 og 10-10. Þá gáfu stelpurnar okkar aðeins í og náðu þriggja marka forskoti í hálfleik 13-10.
Þær höfðu yfirhöndina í byrjun seinni hálfleiks 14-10, 15-11, 16-13 en náðu ekki að hrista gestina af sér sem náðu að jafna 17-17. Það var jafnt næstu mínútur, 18-18, 19-19 og þá komustu gestirnir í 19-21 og útlitið ekki nógu gott hjá okkar stelpum. En þær tóku á sig rögg og hlutirnir fóru aftur að ganga og náðu þær að jafna 21-21 og sigu síðan framúr með stórgóðum endaspretti og unnu eins og fyrr segir 26-23. Hanna G. Stefánsdóttir skoraði flestu mörkin eða 8 mörk, hún er frábær =) Þetta var spennandi leikur og margt haukafólk kom til að styðja Haukastelpurnar. Stelpurnar í Haukum eru í 2 sæti í úrslitatöflunni ásamt stjörnunni =) Áfram Haukar =)