Ég var að spá, hvaða íslenska plötubúð er “best” og er með eiginlega allt svona gullaldarstuff.

Langar í alla diskana með Electric Light Orchestra (ætla að byrja á því að eignast allar stúdíóplötur) og svo getur maður keypt sér eitthvað live og best of eða eitthvað. En ég hef bara ekki séð þessa diska í þessum týpísku tónlistarverslunum eins og skífunni og bt.

Ég var búinn að setja alla ELO diskana í körfu á amazon en svo fór ég að skoða þetta betur og þá er amk tveir af þessum diskum notaðir, s.s. ekki nýir. Mér langar nú að fá þessa diska alla nýja. Er þetta til í einhverri verslun á íslandi. Má líka vera erlend netverslun svo framarlega sem að þetta sé nýtt (ekki notað).
Cinemeccanica