Jólatrivianinu er þá lokið og var þátttakan bara mjög fín. 18 manns tóku þátt og sést það á stigafjöldanum sem fólk var að ná að trivia-ið var mikið auðveldara en það fyrra.

En hérna eru úrslitin:

1. lazytown - 11 stig
2. birbis - 11 stig
3. StackhouseM - 10 stig

Þó lazytown og birbis hafi verið með sama stigafjölda þá sendi lazytown svörin sín langt á undan birbis þannig ég tel lazytown sem sigurvegara.

Aðrir þátttakendur voru:

arnare - 9 stig
shakaluka - 8 stig
armrdwlf - 8 stig
colosuss - 8 stig
CarpeDiem - 8 stig
AceRocks - 6 stig
ledzepp - 6 stig
siggi20 - 5 stig
hratli - 5 stig
MuadDib - 4 stig
tumisnumi - 4 stig
Devotion - 4 stig
Lalli2 - 4 stig
tilhvers - 3 stig

Ég vil þakka öllum þessum einstaklingum fyrir að taka þátt í trivia-inu og vonast til að þessir sömu einstaklingar haldi áfram að taka þátt í komandi trivia.

Nefndu mér þrjár hljómsveitir sem Eric Clapton hefur verið í ? (3 stig)
The Yardbirds, Blind Faith, Cream, Derek & the Dominos

Hvaða tveir meðlimir The Beach Boys voru í Suður Afrískri hljómsveit áður en þeir gengu til liðs við The Beach Boys ? (2 stig)
Ricky Fataar og Blondie Chaplin

The Quarrymen -> ********* -> The Beatles, hvaða nafn á að vera þar sem stjörnurnar eru ? (1 stig)
Silver Beatles

Hvaða hét hljómsveitin sem Ritchie Blackmore stofnaði eftir að hann hætti í Deep Purple og hvaða hljómsveit stofnaði Ian Gillan eftir að hann hætti í Deep Purple ? (2 stig)
Ritchie: Rainbow - Gillan: Gillan

Hvaða hljómsveit missti tvo meðlimi ásamt einni bakraddasöngkonu í flugsslysi árið 1977 ? (1 stig)
Lynyrd Skynyrd

Hvað er sérstakt við plötuumslögin á The Piper at the Gates of Dawn, A Saucerful of Secrets og Ummagumma ? (1 stig)
Myndir af meðlimum Pink Floyd eru á þeim.

Hvaða lag með Queen tók 3 vikur að taka upp ? (1 stig)
Bohemian Rhapsody

Hver stofnaði The Rolling Stones ? (1 stig)
Brian Jones

Í hvaða borg og hvaða ár fóru fram síðustu tónleikar The Beatles þar sem áhorfendur borguðu sig inn ? (4 stig)
San Francisco árið 1966

10. ,,Oh, I been flying… mama, there ain’t no denyin’. I’ve been flying, ain’t no denyin’, no denyin’" Úr hvaða lagi er þessi texti ? (1 stig)
Kashmir