Joey og Rachel Ég er alveg geðveikur Friends aðdáandi og hef verið það í mörg ár og horfi á friends aðalega út af húmornum (ég er sko strákur). Þegar Joey flutti frá Chandler fannst mér þættirnir brotna soldið niður uppá húmorinn að gera en svo sá ég í seinasta þætti að Joey opnaði svona dæmi með hring í (veit ekkert hvað það heitir) fyrir framan Rachel og hún hélt að hann væri að biðja hennar og hún sagði “yes”. Ég bíð spenntur eftir 9. seríu til þess að fá þetta staðfest hvort að hún hélt að hann væri að biðja hennar en hann sagðist vera að fara að ná eitthvað í Ross'es jacket svo að kannski vissi hún að Ross ætti hringinn. En ef að þau taka þá stefnu að giftast (Rachel og Joey) þá er ég bara hættur að horfa á Friends og farinn að horfa á eitthvað annað. Þeir (þættirnir) verða bara einfaldlega of væmnir.