Ég verð að segja að ég hef ekki pælt í þessu mikið upp á síðkastið en hver er eiginlega langfyndnastur af FRIENDS karakterunum? Ég veit að svörin eru örugglega mjög mismmunadi en það væri gaman að fá að vita átæðuna fyrir því að þau séu það.

* Í fyrstu var það alveg á hreinu hjá mér að Pheobe væri fyndnust. Hún er langrugluðust af þeim og það er henni að þakka að flestir gestaleikararnir í þáttunum eru weirdóar! Hún elskar að syngja og er rosalega sjálfselsk á stundum.

* Svo fannst mér Chandler vera fyndnastur alveg í 2 ár eða e-ð af því að hann sagði svo fyndna brandara og var svo gasalega kaldhæðinn.
Rachel: “Ok I know I had it on when I was in the kitchen with..”
C: -“Dinah?”
C: “Could you want her more?”
Ross: “Who?”
C: “Dee, the sarcastic syster from ”whats happening“..”

* Joey var í uppáhaldi hjá mér en ekki lengi, hann var vitlaus og algert krútt en þegar höfundarnir gerðu hann að svona miklum hustler og beibi fannst mér hann ekki lengur fyndnastur heldur flottastur.
J: “Whats wrong with this guy.. It's count Rushmore!”
C: “.. btw, there is no count Rushmore!”
J: “Then who's the guy that painted the faces on the mountain??”

* Rachel var aldrei fyndnust að mínu mati en hún er rosalega góð í að gera sig að fífli og koma sér í skíta-aðstæður eins og þegar hún var í vinnuviðtalinu hjá Ralph Lauren og hélt að mr. Zelner væri að beita sig kynferðislegri áreitni.. tvisvar!

* Monica hefur verið fyndust að mínu mati hingað til. Þrífur endalaust og þolir ekki óskipulag.. Eins og ég og mamma mín báðar tvær! Hún er alger frekja og kappsöm.. eins og ég. Og er bara í flestum tilfelum mjög lík mér. Þangað til í þættinum með skápinn hennar Monicu og öllu draslinu í honum datt mér ekki í hug að Ross gæti verið fyndnastur. En ég missti svo mikla virðingu f. Monicu við að horfa á þennan þátt að ég fór að hugsa..

* Ross er auli, hann er öðruvísi og segir sjaldan brandara en hin fimm hlæja þó endalaust af honum. Ég hélt að hin væru fyndnust af því þau sögðu svo MARGA brandara en núna er Ross í uppáhaldi hjá mér þar sem hlutirnir sem hann gerir eru SVO fyndir að ég grenja úr hlátri við að hugsa um þá;
Monica skellti óvart hausnum á Ben upp í loftið og Ross ákvað að stríða henni og sagði að nokkrir stafirnir í stafrófslaginu hefðu bara dottið úr höfðinu á honum og að það væri eins og annar fóturinn á honum gengi hraðar en hinn. Svo sýndi hann hvernig Ben gekk í hringi og Jennifer Aniston þurfti greinilega að taka á öllu sínu til að hlæja ekki á bakvið hann.
Þegar stjórinn hans át samlokuna hans í vinnunni og Ross varð “reiður”!
“Princess Leia in a gold-bikini”-fantasían hans.
Þegar hann þoldi ekki að paolo og Rachel áttu bara “meaningless, animal sex” -“..and what? We dont have anything animal.. not even.. Chipmonk sex???”
(Íkornakynlíf)
Hann er bara lang skemmtilegastur..

Hvað finnst ykkur??

*MN*
*MN*