Dularfull litla systir Joey´s Ég veit ekki hvort ég sé eitthvað að rugla en núna í nýlegum þætti af Friends í seríu 8 kom litla systir hans Joey fram. Hún bað Rachel um góð ráð varðandi barnseignir og þorði ekki að segja Joey frá því að hún ætti von á barni. Man einhver eftir þættinum þar sem Chandler svaf hjá einhverri af systrum Joey í partýi hjá þeim félögum. Þeas þegar Chandler var ekki giftur Monicu og Joey og Chandler bjuggu saman. Chandler varð gífurlega fullur og svaf hjá systur Joey´s en man svo ekki daginn eftir hvaða systir það var. Hann fór svo heim til Joey(þeas til ömmu Joey´s) og þar var Joey að borða með öllum systrum sínum. Ég man ekki eftir að hafa séð þessa litlu systir hans þar við matarborðið. Endilega leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál. Bara svona að fá þetta á hreint :)