Byrjar vel.... jæja, þá eru Friends loksins byrjaðir, eftir að maður er búinn að bíða spenntur í nokkra mánuði.

Ég get ekki annað sagt en að þessi þáttur seinasta laugardag hafi verið snilldargóður, hvað fannst ykkur ?
Nú er maður bara að bíða eftir fréttum um að hver sé pabbinn…

En hvað finnst ykkur um að Rachel sé ófrísk ?
Ég er ekki viss, ég veit ekki hvernig það mun koma út að fá annað barn í þáttinn, sem þarf að vera stöðugt í þættinum (allavana mikið í kringum Rachel), annað en Ben sem býr hjá mömmu sinni og birtist ekki mjög oft á skjánum. En það er örugglega hægt að spila það einhvernveginn skemmtilega inní, hvernig Rachel höndlar þetta allt saman og svona … (ég verð samt að segja að það var smá léttir að heyra Phoebe segja “it's negative”…)

og nú get ég bara ekki beðið eftir að heyra hver er pabbinn ! vonandi mun það koma fram í næsta þætti !