Sean Penn ; Gestaleikari NBC hefur fundið nýja leið í baráttu sinni við áhorfið á móti “Survivor” ; Sean Penn !

Leikarinn/Leikstjórinn hefur ekki verið þekktur fyrir að taka að sér létt grínhlutverk á sl. árum en hefur þó samþykkt að koma fram í nokkrum þáttum sem kærasti Ursula —-> sem er auðvitað tvíburasystir Pheebs.
Sagt er að búið sé að taka upp þáttinn og hann mun að öllum líkindum verða á skjánum í Bandaríkjunum í nóvember.

Hann hefur ekki leikið gestahlutverk í sjónvarpi síðan 1994, en þá lék hann sjálfan sig í bæði “Larry Sanders Show” og “Ellen”.

Friends er ekki þekktur fyrir að eiga í vanda við að lokka til sín stóru nöfnin í Hollywood, en eins og allir vita hafa komið fram leikarar á borð við Juliu Roberts, Bruce Willis og Robin Williams. Í seinustu seríu komu t.d. fram leikkonurnar Susan Sarandon og Winona Ryder.