Jæja, þetta áhugamál er búið að vera frekar dautt í svolítinn tíma enda nýja serían ekki byrjuð og svona. Ég er ein af þeim sem get ekki beðið og reyni þess vegna alltaf að komast að því hvað gerist í þáttunum jafnvel áður en þeir eru sýndir í Bandaríkjunum (sorglegt, ég veit). Án þess að vera með spoilera (ég veit, þeir eru bannaðir)langar mig að segja frá því að þeir urðu víst að breyta einu plottinu í þriðja þættinum í nýju seríunni (8. seríu) vegna hryðjuverkanna. Það átti að fjalla um sprengju um borð í flugvél, Chandler var handtekinn að ég held fyrir að djóka með að hann væri með sprengju og það sem átti að vera fyndið var hversu hart öryggisverðirnir brygðust við. Ekki fyndið í ljósi atburða seinustu viku, það var samt búið að taka þáttinn upp löngu áður, en þessu verður breytt (þannig að þetta er EKKI spoiler :) ). Anyway, þá eru upptökur stopp í bili, það átti að fara að taka upp 5. þáttinn en David Schwimmer var fastur í LA og mátti auðvitað ekki fljúga strax eftir hryðjuverkin. Mér skilst að þetta sé svona með fleiri þætti.
Kveðja, Sveskjan