Stóri Koss Rachelar Næsti Friends þáttur mun víst verða TOW Rachel's Big Kiss.
Þetta var örugglega sá mest umtalaðasti þáttur þessarar seríu (kannski fyrir utan giftingaþáttinn) og jókst áhorfið á Friends rosalega mikið úti í Bandaríkjunum. Samt hefur verið talað um að þessi koss hafi nú verið ekkert, eitthvað smá mömmukiss.
Ég er nú samt (eins og allir strákar) mjög spenntur að sjá þennan koss, kossinn milli Jennifer Aniston og Winonu Ryder.
Winona leikur gamla systrafélags-systur Rachelar sem Rachel rekst óvænt á. Rachel veltir því fyrir sér hvort hún eigi að ræða við hana um atvikið (væntanlega kossinn) þar sem vinátta þeirra tók dramatíska og ástríðufulla breytingu.
Hljómar spennandi … en þessi koss er greinilega endurminning en samt sem áður koss :-)
Hvað segið þið ? Bíðið þið ekki spennt eftir þessum kossi ?