Mun Monica Og Chandler Giftast ?!? Ég verð að viðurkenna að ég er orðinn dáldið spenntur yfir því að vita hvort Monica og Chandler munu giftast !!

ÞEIR SEM VILJA EKKI VITA UM HVAÐ ÞÁTTURINN VERÐUR ÞÁ EKKI LESA ÞAÐ SEM KEMUR. ÞETTA ER ENGINN SPOILER UM ÞÁTTINN, BARA UM HVAÐ HANN ER !

Það sem ég hef lesið um seinasta þáttinn er að Chandler fær “cold feet” og stingur af úr giftingunni. Ross fer að leita af honum og Phoebe og Rachel reyna að tefja Monicu svo hún komist ekki að því að hann er stunginn af ! Hinsvegar veit ég ekki hvort hann Chandler kemur aftur. Joey er að leika í einhverri World War I og óvíst er hvort hann nái í tíma til að gifta Mon og Chan en eins og allir vita hafði hann samþykkt að gifta þau.

Þetta verður örugglega snilldarþáttur og ég get ekki beðið eftir að sjá hann, sérstaklega til að sjá hvort Chandler snýr til baka. Þessi sería mun örugglega enda á einhverju spennandi atriði eins og allar hafa gert, nema ein (6 sería). Það verður líka alveg brillíant að sjá pabba hans Chandlers í giftingunni, orðinn að konu.

Síðan bíð ég líka með eftirvæntingu eftir næsta Friends þætti á morgun, sem Denise Richards leikur frænku Monicu og Ross…. og Ross verður hrifinn af henni :-)

En … hvað um það … hvernig HALDIÐ þið að gifting Chandler og Monicu endi ? (Þeir sem vita hvernig hún endar ekki koma með neinn spoiler !!)