Gott fólk, Það er að koma nýr þáttur á skjá Einn sem heitir The system of the wives.

Það er um þrjár konur,Ashley,Anna og Mary, sem hittast á hverju föstudagskvöldi til að kvarta,kvarta og aftur KvArTa um eiginmenn sína.
Þær eru líka að reyna finna góð ráð til þess að koma letidýrunum úr sófunum,taka bjórinn úr hendinni þeirra og gera eitthvað skemmtilegt, þið vitið, eins og eiginkona og eiginmaður.

Ashley kemur með snilldarráð, hún notar það á manninn, kemur honum úr sófanum og þau fara á fínt veitingahús og labba síðan á ströndinni saman, hann er aftur farinn að haga sér eins og herramaður…Eða svo segir hún.
Þær segjast gera allt til að fá að vita þetta ráð, þær borga henni pening, gefa henni gjafir og dekra bókstaflega við hana.

Hún segir þeim þetta frábæra ráð sitt.
Þær prófa það á eiginmenn sína, En engar breytingar verða.

Þær fara að spyrja sjálfar sig:
Erum við með svona miklu verri mann en hún?
En auðvitað var það ekki satt.

Þær ákveða að koma í óvænta heimsókn til Ashleys. Hún er þar að nöldra meðan hann er hálfnakinn í sófanum með bjór og pizzu að glápa á enska boltann.

Þannig endaði fyrsti þátturinn, þið þurfið að horfa á þetta og fylgjast með, eþtta er ótrúlega fyndið!;)
ætla að koma með “popptíví múv”: Það er gott að glápa. hehe;)
.:Takk Fyrir:.