Hafið þið tekið eftir því að allir vinirnir geta sungið. Ég myndi jafnvel segja að Phoebe sé lélegasti söngvarinn af þeim þótt hún syngji á kaffihúsinu stundum. Það er nú frekar sjaldgæft að allir í vinahóp geti sungið. Ég ætla að rifja upp nokkur söngatriði.
Það muna eflaust allir eftir því að Ross og Chandler voru í hljómsveit saman í gaggó. Síðan þá hefur Ross fiktað svoldið á hljómborðinu( m.a. læsti hann sig oft inni í kjallaranum á gaggóárunum og spilaði sína weird tónlist). Eitt sinn er Ross að ráða krossgátu og byrjar að raula lagið úr Odd Couple og hinir byrja að syngja með honum þegar þau klára lagið byrjar Ross að raula lagið úr I dreamed of Jeannie og þá segir Chandler strax
“ ohh no no we´re done”.
Þegar Ross fer á settið þar sem Marcel er að leika í Outbreak 2 þá kallar hann á Marcel en Marcel bregst ekki við fyrr en Ross byrjar að syngja In the Jungle og allir vinirnir hjálpa til, þar fer reyndar Joey á kostum þegar hann sýnir mikla hæfileika við að fara upp á háa c-ið( bara snilld).
Síðan fær Phoebe eitt sinn alla vinina með í að syngja smelly cat en þá fékk Ross því miður enga línu til að syngja( bömmer).
og svo að lokum þegar Chandler er nýhættur með Janice þá kemur hann heim og skellir plötu með Lionel Ritchie á fóninn. Þá kemur Phoebe inn og þau taka smá dúett saman, en þau lenda reyndar í vandræðum með að enda lagið í sama tón.
Ég man ekki eins og er eftir fleiri “tónlistaratriðum” en ég veit að fólk rifjar vonandi upp þau sem ég er að gleyma.

-cactuz